135. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2008.

raforkumálefni.

311. mál
[19:30]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi frekari virkjunarframkvæmdir, þá erum við á því að halda almennt að okkur höndum. Við höfum nægjanlega orku eins og sakir standa og eins og menn þekkja höfum við sett fram þá stefnu að setja eigi á stóriðjustopp til ársins 2012. Með hliðsjón af því erum við ekki fýsandi þess að halda áfram þessari virkjanastefnu almennt.

Ég tek undir að eðlilegt sé að efla flutningskerfið þó að ég hafi ekki fastmótaðar skoðanir á því eða þekkingu til að segja á hvern hátt ég teldi það vera heppilegt, ég hef ekki þekkingu til að svara því.

Varðandi hugmyndafræðina er ég einfaldlega að hvetja til þess að við horfum til reynslunnar og það er gert í þessari skýrslu. Það gerði hv. þm. Ólöf Nordal líka ágætlega í máli sínu áðan. Hún leiddi getum að því, eins og ég sagði reyndar í ræðu minni, að samkeppnin í framtíðinni væri á milli framleiðenda og, ef ég heyrði rétt, skírskotaði til mismunandi framleiðslumáta, að við værum með mismunandi leiðir til að skapa raforku. Ég held að þetta sé alveg rétt. Ég spurði þá og beini þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort það sé ekki alla vega íhugunarvert, í ljósi þess hve samkeppnin hefur fært okkur lítið og hve allir virðast sammála um að það módel hafi ekki gengið upp, að prófa eina gamalkunna leið, samvinnuna.