raforkumálefni.
Herra forseti. Ég er viss um að við hv. þm. Ögmundur Jónasson gætum unnið mjög vel saman að því að finna lausn á ýmsum vandamálum en í þessu efni veit ég ósköp vel að þær varfærnisraddir eða varúðarraddir sem heyrðust þegar raforkulögin voru sett hafa að mörgu leyti komið fram að því leyti til að samkeppnin hefur ekki orðið jafnmikil og við vonuðumst eftir. Ég held samt að við getum stigið ákveðin skref til að laga það og ég hef trú á því að kannski muni koma fram einhverjar tillögur í því efni á næstunni eða ég vona að svo verði.
Ég vil samt taka fram og það þekki ég af eigin raun að þær breytingar sem urðu með raforkulögunum hafa reynst orkufyrirtækjunum að mörgu leyti mjög vel. Þá er ég að vísa til þess að það er krafa í þessari löggjöf um ákveðið, ég segi ekki beint háttalag heldur ákveðna háttsemi. Menn þurfa að skoða hlutina með dálítið öðrum hætti og menn hafa verið að fara yfir reksturinn á fyrirtækjum sínum. Alla jafna hafa þetta verið glæsileg fyrirstæki og skilað miklu inn í þjóðarbúið en þessi breyting hefur vakið menn til umhugsunar um nýjar leiðir í rekstri og ég held að það sé jákvætt. En ég breyti ekkert skoðun minni hvað varðar samkeppnisþáttinn, ég er eindregið á þeirri skoðun að hann verði alltaf meiri hjá framleiðslufyrirtækinu sjálfu en hjá endanlegum söluaðila. Ég vil taka fram út af þessu að mjög margt hefur farið til betri vegar eftir þessa breytingu og ég held að við getum enn gert breytingar sem lúta að því að við stöndum enn þá betur en við gerum núna.