135. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2008.

tæknifrjóvgun.

183. mál
[15:44]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get svo sem skilið að hv. þingmaður vilji bera blak af starfi fyrrverandi heilbrigðisnefndar enda var þingmaðurinn varaformaður nefndarinnar. Mér finnst samt full rök fyrir þeim skoðunum sem ég set fram um vinnubrögðin á þeim tíma. Það má vel vera að nefndin hafi skoðað þetta vel á þeim stutta tíma sem hún hafði til ráðstöfunar. En hún afgreiðir málið áður en hún fær umsögn vísindasiðanefndar. Það finnst mér ekki til eftirbreytni. Það lá svo mikið á að gera þetta mál að lögum fyrir kosningar að nefndin gaf sér ekki tíma, eða var ekki gefinn tími af yfirstjórn þingsins og ríkisstjórninni sem var búin að ákveða hvenær þinghaldi ætti að ljúka, til að afgreiða málið. Slík vinnubrögð eru náttúrlega algjörlega óásættanleg.

Til að reyna að bjarga sér út úr málinu með miklar athugasemdir í höndunum þá er bara brugðið á það ráð að búa til breytingartillögu sem segir: Lögin skulu endurskoðuð fyrir 1. janúar 2008. Öllum athugasemdum er sópað út af borðinu inn í einhverja endurskoðun. En þar með hefði frumvarpið tekið gildi sem lög með þeim göllum sem á þeim hefðu verið. Það er ekki alltaf létt verk að sníða agnúana af lögum sem eru komin til framkvæmda, þegar búið er að veita hinum og þessum aðilum leyfi til rannsókna. Það hefði sjálfsagt heyrst hvína í þeim ef strekkja hefði átt á þeim skilyrðum eftir á.