135. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2008.

tæknifrjóvgun.

183. mál
[15:50]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Við tökum hér til 2. umr. frumvarp um stofnfrumurannsóknir. Þetta er eitt af þeim frumvörpum sem ég tel að sýni það og sanni að mikilvægt er að geta haft mál til afgreiðslu hér inni á þinginu í lengri tíma, ekki eingöngu innan hvers þings, heldur geti mál lifað áfram milli þinga. Ég tel að það hafi verið málsmeðferðinni til heilla að málið var ekki afgreitt hér á sl. vori heldur var það áfram hér í vinnslu og tekið alvarlega til endurskoðunar. Vel var farið yfir málið og umsóknirnar í nefndinni sjálfri. Sú yfirferð var hreinlega góð kennsla fyrir nefndarmenn um stofnfrumur og efni frumvarpsins, t.d. hvað stofnfrumurannsóknir og einræktun eru, hvað er leyfilegt samkvæmt frumvarpinu og hvað er óleyfilegt. Það var því mikilvægt fyrir alla þá nýju þingmenn nú sem sitja í heilbrigðisnefnd að fara vel yfir frumvarpið og leita nýrra umsagna um það. Betur sjá augu en auga og það er heldur ekkert í þjóðfélaginu sem kallar á tafarlausa afgreiðslu frumvarpsins. Það skiptir ekki máli hvort það var afgreitt sl. vor eða hvort við afgreiðum það nú á þessu vorþingi. Það sem skiptir máli er að frumvarpið sé vel unnið, vel ígrundað og að við vitum hvað við erum að fara með afgreiðslu þess.

Það er svo margt sem þarf að skoða þegar við seilumst með hjálp tækninnar inn í það sem er viðkvæmast, sem er upphaf lífs, þ.e. samruni sæðisfrumu karls og eggs konu og líf kviknar. Hversu lengi er hægt að nota kynfrumur til þess að líf haldi áfram og glasafrjóvgun geti átt sér stað, að frjóvguðu eggi sé komið upp í leg konu með hjálp tækninnar? Hversu lengi má nota þá fósturvísa, sem ekki eru notaðir til getnaðar, til rannsókna og búa síðan til úr þeim stofnfrumulínur sem eru þá notaðar til áframhaldandi rannsókna? Stofnfrumurannsóknir eiga reyndar ekki við í þessu frumvarpi.

Þetta eru auðvitað mjög viðkvæmar spurningar, ekki síst út frá hugmyndafræði trúarbragðanna og eins út frá siðfræðilegum spurningum, læknisfræðilegum spurningum og út frá vísindasviðinu. Það er mjög eðlilegt að þrýst sé á að fá heimild til þess að nota þessar frumur í læknisfræðilegum tilgangi og eins til þess að þróa áfram þekkingu vísindasamfélagsins á lífi og þróun frumnanna með tilliti til þróunar sjúkdóma, ættgengra og annarra sjúkdóma. Í framhaldinu er kannski möguleiki til þess að nota afurð þessara frumna til þess að þróa lyf og fyrirbyggja þar með sjúkdóma í framtíðinni. Það er trúlega nokkuð langt í að lyfjaframleiðsla verði byggð á þessum rannsóknum. Í dag nýtast þær aðallega þeim sem eiga við erfiðleika að stríða hvað varðar getnað og eins í rannsóknum á erfðaþáttum og sjúkdómum sem bundnir eru erfðum. Það er í sjálfu sér mjög gott en þegar við viljum svo halda utan um rannsóknirnar eru talsvert víð ákvæði í frumvarpinu um notkun umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna. Í 5. gr. segir, með leyfi forseta:

„Með samþykki vísindasiðanefndar er þeim sem hlotið hafa leyfi [þ.e. til rannsókna og til að reka rannsóknarstofur] skv. 2. mgr. 2. gr. heimilt að nota umframfósturvísa sem ráðstafað hefur verið til þeirra skv. 5. mgr. 10. gr., til að búa til stofnfrumulínur sem nýst geta til að afla þekkingar í líf- og læknisfræði eða til að bæta heilsu og lækna sjúkdóma.“

Í meðferð heilbrigðisnefndar hefur því verið komið svo fyrir að bera á sérhverja rannsókn, sem fara á fram á viðurkenndri rannsóknarstofu, undir vísindasiðanefnd en með þessari víðu og opnu skilgreiningu er vísindasiðanefnd nokkur vandi búinn að takmarka heimildir. Erfitt verður að hafna rannsókn þar sem sú rannsókn er vandfundin þar sem ekki er óskað eftir að afla þekkingar í líf- og læknisfræði eða til að bæta heilsu og lækna sjúkdóma. Ég skil því mjög vel áhyggjur vísindasiðanefndar af því hversu opið þetta ákvæði er og hvet til þess að í reglugerð verði þetta skilgreint frekar. Þrengja þarf ákvæðið niður í frekari skilgreiningar á því við hvað þarna er átt. Við ættum þá að horfa til hinna Norðurlandanna í því sambandi ef við getum leitað leiðsagnar hjá þeim.

Það er hugsanlegt að við séum nú, eins og Íslendinga er siður, að byrja á öfugum enda. Samkvæmt frumvarpinu á að nota umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Við hefðum að öllum líkindum átt að hinkra aðeins við og móta stefnu okkur um þessar og þess háttar rannsóknir. Hvernig ætlum við að koma þeim fyrir og hverjir eiga að gera það? Eigum við að varpa þessu alveg út á hinn frjálsa markað? Ætlum við Blóðbankanum einhverja hlutdeild þar í? Ætlum við að styrkja aðrar rannsóknir samhliða? Ætlum við að hafa einhverja framtíðarsýn eins og háskólarnir eru að móta sér núna? Ætlum við að ná umtalsverðum árangri, að vera í framvarðarsveit? Ef við ætlum að gera það eru það umtalsverðir peningar sem við yrðum að setja í þessar rannsóknir. Ætlum við bara að sjá til hvernig þetta þróast allt saman eða viljum við vera í forustusveit með þá vísindamenn sem við eigum sem sýnt hafa mjög góðan árangur á þessu sviði?

Það væri gott að hafa slíka markmiðssetningu og stefnu í farteskinu þegar við afgreiðum þetta frumvarp en þetta er nú háttur okkar Íslendinga, að láta slag standa. Eftir sem áður þarf sannarlega að veita meira fé ef við ætlum að stunda þessar rannsóknir hér og gera það af metnaði eins og Blóðbankinn er að gera í dag. Hann þarf sannarlega á meiri fjármunum að halda þótt ekki væri nema til þess að standa undir síaukinni þörf á líffærum úr lifandi líffæragjöfum.

Ég tel að í frumvarpinu — eins og það lítur út hér og eins og fram kemur í nefndaráliti heilbrigðisnefndar sem hv. formaður nefndarinnar hefur farið vel yfir — hafi verið tekið tillit til flestra atriða sem komið hafa fram. Umsagnir um frumvarpið hafa allar verið frekar jákvæðar með undantekningu þó um ábendingu út frá þessum siðfræðilegu gildum. Þó er tekið tillit til þess með því að vísa til vísindasiðanefndar og frumvarpið er byggt á áliti siðanefndar Evrópusambandsins í grundvallaratriðum. Það er því reynt að koma til móts við þau sjónarmið eins og hægt er í frumvarpinu.

Ég tel að hraða þurfi endurskoðun laga um tæknifrjóvgun því að það eru breytt viðhorf í þjóðfélaginu hvað varðar rétt einstæðra mæðra til tæknifrjóvgunar, meðgöngu og fleira. Það eru sjónarmið sem komið hafa fram um rétt kvenna sem misst hafa legið en halda eggjastokkunum, um rétt þeirra til að fá meðgöngumæður. Það eru líka breytt viðhorf til aldurstakmarkana kvenna hvað varðar rétt til þess að fara í tæknifrjóvgun. Þessi og mýmörg önnur atriði eru dæmi um breytt sjónarmið hvað varðar rétt kvenna til tæknifjóvgana og því tel ég mikilvægt að hraða yfirferð laga um tæknifrjóvgun.

Með tilliti til þess tel ég að samhliða því eigi að skoða hvort ekki sé rétt að hafa sérlög um stofnfrumur og stofnfrumurannsóknir þannig að sú umgjörð verði skýrari en hún er samkvæmt þessu frumvarpi.

Hæstv. forseti. Ég styð þetta frumvarp og tel að það hafi unnist betur með því að hafa lengri meðgöngutíma og fara betur yfir málið. Með þeim breytingum sem heilbrigðisnefnd leggur hér til, tel ég að við getum vel við unað á þessu stigi málsins.