135. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2008.

Sundabraut.

[10:54]
Hlusta

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Eitt af stærstu verkefnunum sem við stöndum frammi fyrir á sviði samgöngumála, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu heldur reyndar á landinu öllu, er tvímælalaust lagning Sundabrautar. Það er verkefni sem lengi hefur verið á hönnunarstigi og hefur því miður einkennst um langt skeið af togstreitu á milli ríkisvaldsins annars vegar og borgarinnar hins vegar um legu brautarinnar. Afstaða borgarinnar er einhlít og hún er þverpólitísk og ég hef orðið var við vaxandi stuðning við þá afstöðu hér á hv. Alþingi.

Hæstv. forseti Alþingis lýsti meira að segja þeirri skoðun sinni afdráttarlaust í umræðum um lestarsamgöngur hér fyrr í þessari viku. Hann tók þá af skarið um afstöðu sína. Eftir átta ár í samgönguráðuneytinu sagði hann að nú gæti hann loks talað frjálst og lýsti sem sagt yfir því að það ætti hiklaust að gera ráð fyrir Sundagöngum og að óhjákvæmilegt væri að fara þá leið.

Það má kannski segja hæstv. forseta Alþingis til hróss að það er þó betra seint en aldrei. En nú hlýtur hins vegar sú spurning að vakna hvort hæstv. samgönguráðherra, sem ekki hefur viljað lýsa afstöðu sinni til þessa máls hingað til, sé ekki reiðubúinn að taka af skarið og lýsa stuðningi við Sundagöng. Verðum við ef til vill að bíða þess að hæstv. ráðherra hætti sem samgönguráðherra og verði hugsanlega kominn í forsetastól á Alþingi þegar hann þorir að taka afstöðu í þessu máli?