breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.
Frú forseti. Ég hef lesið þetta frumvarp ágætlega og ætla ekki að halla orði á hæstv. forsætisráðherra, mér dettur það ekki í hug. En það er alveg ljóst að í kjölfar þess að frumvarpið verður samþykkt, þarf að setja nánari reglur til að útfæra efnisatriði frumvarpsins. Það þarf að skýra útlínur þeirrar starfsemi sem frumvarpinu og lögunum er ætlað að ná yfir. Ég viðraði þá skoðun mína að ég tel skynsamlegra og eðlilegra að Alþingi og alþingismenn komi að því að móta þær reglur frekar en hinir ágætu menn og konur sem sitja munu í nefnd þeirri sem hæstv. ráðherra mun skipa. Ég tel að það sé okkar hlutverk á þinginu að móta slíkar reglur miklu frekar en einhverra annarra, hversu merkilegir og ágætir menn það eru.