135. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[16:46]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki sammála ályktun hv. þingmanns um áhrif frumvarpsins á sjálfsstjórn sveitarfélaga. Ég tel að ákvæði frumvarpsins gangi á engan hátt í berhögg við það enda segir þar að þeim málum skuli skipa með lögum — og þetta eru jú lög sem stendur til að gera þannig að þetta er allt í samræmi við stjórnarskrána.

Mér finnst hins vegar ástæða til að spyrja hv. þingmann: Fyrst hann lýsir afstöðu sinni þannig að hann sé í raun andvígur grundvallaratriði frumvarpsins sjálfs, um opinbert eignarhald á réttindunum sem um ræðir, finnst mér hann þurfa að svara því hvort hann styður frumvarpið eða ekki.