breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir upplýsingar og leiðrétta misskilning minn varðandi möguleika á eignarhaldi einkaaðila á opinberum orkufyrirtækjum. Þá liggur það fyrir og þarf ekkert að óttast neitt í þeim efnum.
Auðvitað er það rétt hjá honum að ég ber sérstaklega fyrir brjósti hag Orkubús Vestfjarða líka vegna þess að mér er það enn þá minnisstætt þegar var verið að búa það fyrirtæki til þá var það hugsjón allra Vestfirðinga að búa það fyrirtæki til, stofna það, fá samþykkt lög um það og það lögðu allir sínar eignir inn í orkubúið, hvort sem það voru rafveitur, hitaveitur eða virkjanir og öll réttindi. Öll réttindi til nýtingar orku á Vestfjörðum eru í eigu Orkubús Vestfjarða.
Það væri dálítið sárgrætilegt ef mál þróuðust með þeim hætti að þetta rynni út úr höndunum á fulltrúum almennings eða Vestfirðinganna sjálfra og nýtingin á þessum réttindum yrði með öðrum hætti en til var ætlast þegar þetta var gert. En ég er nú glaður að heyra að hæstv. ráðherra hefur girt fyrir alla möguleika á því að láta þessi mál þróast í óefni.
Það má vel vera að það sé frjálslyndi að tala fyrir því að einkaaðilar stundi atvinnurekstur í orkugeiranum eins í og öðrum þáttum samfélagsins. En það er bara tímanna tákn. Auðvitað hefur margt breyst á undanförnum áratugum í þá veru að þar sem áður hið opinbera var eini aðilinn sem gat staðið fyrir því að veita tiltekna þjónustu og byggja hana upp þá geta það aðrir núna og við eigum ekkert að neita okkur um það, virðulegi forseti. Við eigum að tryggja almannahagsmuni.