störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er fráleitt ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir orkusölu til gagnavers að ráðast í virkjun í Neðri-Þjórsá og ég hygg að það hafi upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar ekki sagt.
Óveruleg orkusala er til þessa gagnavers í áætlunum nú og það er alveg ljóst að jafnvel þó að orkuþörfin yrði umtalsverð þá er Landsvirkjun komin mun lengra með aðra virkjunarkosti, svo sem eins og Búðarháls þar sem þegar hefur verið gefið út virkjunarleyfi, ráðist í að byggja brú og grafa grunn fyrir virkjuninni. Sú virkjun mundi skila margfaldri þeirri orku sem þetta gagnaver þyrfti í besta falli á að halda í náinni framtíð — ef það eflist, sem við hljótum að vona.
Ég held að þetta sé óþarfauppsláttur í Fréttablaðinu í dag og óþarfaáhyggjur. Á vegum ríkisstjórnarinnar er unnið að heildaráætlun um vernd og nýtingu íslenskrar náttúru í þágu orkuiðnaðarins og í þágu náttúruverndar. Við gerum ráð fyrir að ljúka þeirri vinnu á síðari hluta næsta árs og taka það til umfjöllunar hér á Alþingi.
Ég er þeirrar skoðunar að úr því sem komið er sé best að þeir virkjunarkostir sem eru í Neðri-Þjórsá verði ekki komnir til framkvæmda fyrr en eftir að þeirri vinnu er lokið og geti komið hér til pólitískrar umfjöllunar í þinginu með öðrum virkjunarkostum í landinu. Að við getum reynt hér, í öllum þeim flokkum sem á þingi sitja, að vinna eina heildstæða áætlun um það hvernig við ætlum að vernda landið og hvernig við ætlum að virkja það og reynt að skapa sátt um hvaða verkefni farið verði í og í hvaða röð. Það þarf að gera í þágu náttúru Íslands og komandi kynslóða en líka til þess að reyna að ná þeirri sátt í þennan mikilvæga málaflokk (Forseti hringir.) sem við höfum lengi haft þörf fyrir.