viðbrögð ríkisstjórnarinnar við verðsamráði olíufélaganna.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra kærlega fyrir þessi svör. Það er nokkuð dapurlegt að ríkið skuli vera svona aftarlega á merinni í þessum efnum eins og svarið ber í raun vott um. Eins og ég rakti áðan lauk rannsókn áfrýjunarnefndar samkeppnismála í janúar 2005 og málshöfðunin var 7. febrúar 2006, rúmu ári eftir að niðurstaðan fékkst. Maður hefði haldið að þegar um svo stórt svikamál er að ræða þar sem stofnanir ríkisins sjálfar, Samkeppniseftirlitið og lögreglustjóri, komast að þeirri niðurstöðu að um sviksamlegt framferði hafi verið að ræða þá væri það hlutverk ríkisins að ganga á undan með góðu fordæmi. Það var því miður aldeilis ekki og það eru margir aðrir sem urðu fyrri til og nú munu tveir dómar fallnir.
Mér þykir líka nokkuð furðulegt að ríkið skuli hafa byrjað á því að óska eftir skriflegri játningu á því frá olíufélögunum að þau hafi hagnast á þessu samráði og að þau hafi valdið ríkinu tjóni. Vera kann að það sé erfiðara að sanna bótakröfurnar hjá ríkinu en hjá öðrum en það var ekki við því að búast að játning fengist í þessum efnum, það lá alveg ljóst fyrir að þó að þessir olíufurstar játuðu samráðinu sem slíku harðneituðu þeir alla tíð að hafa valdið tjóni eða hagnast nokkuð á þessu.
Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þessum efnum, að láta flýta gagnaöfluninni og (Forseti hringir.) reyna að fá niðurstöðu í málinu.