135. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2008.

samkeppnishæfni í ferðaþjónustu.

[10:41]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Mér finnst þetta langsótt skýring hjá hv. þingmanni. Vissulega er það leitt að Ísland skuli detta úr fjórða sæti í það ellefta á þessum lista hjá World Economic Forum. En það er alveg rétt að breytt var um aðferðir og það er skýringin á því að þetta gerðist. Það er aðeins eitt norrænt land ofar á þessum lista en Íslendingar. Auðvitað ætti þetta að verða til þess að við hertum róðurinn til að komast aftur upp þennan lista því að við viljum auðvitað vera ofar á honum eins og á öllum svona listum þó að þeir séu ekki aðalatriðið í sjálfu sér.

Hv. þingmaður talaði um mengun og mengandi starfsemi. Hún er auðvitað hverfandi á Íslandi á alþjóðlegan mælikvarða. Heildarmengunin af gróðurhúsalofttegundum á Íslandi mun vera 0,01% af því sem blásið er út í andrúmsloftið á heimsvísu, svona nokkurn veginn sambærilegt við eitt rykkorn.