samkeppnishæfni í ferðaþjónustu.
Virðulegur forseti. Víst er það rétt hjá hæstv. forsætisráðherra að í heiminum öllum erum við kannski agnarsmá, við Íslendingar, og mælumst yfirleitt ekki há í hundraðshlutum. Hins vegar er það þannig að mengun er mæld miðað við höfðatölu eins og við sækjumst venjulega eftir þegar við státum okkur af einhverju. Því miður er það svo að mengun hér á hvern íbúa hefur farið ört vaxandi og við erum lenda neðsta flokki þjóða að því leytinu til.
Ég held, með fullri virðingu fyrir hæstv. forsætisráðherra, að ekki sé langsótt að velta því fyrir sér hvort heimurinn muni í ríkari mæli horfa til þess hversu mikið menn menga með gróðurhúsalofttegundum þegar hann metur lífskjör og samkeppnisskilyrði á næstu árum. Það er heldur ekki langsótt að það gefi okkur efnislega ástæðu til að staldra aðeins við, íhuga hvort við höfum kannski farið of geyst og hvort við þurfum með einhverjum hætti að mæta þeirri þróun til að aðrar (Forseti hringir.) atvinnugreinar en stóriðjan þurfi ekki að líða fyrir það í samkeppnisskilyrðum sínum.