lækkun tolla á matvæli.
Herra forseti. Ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ráðist verði í einhverjar stórfelldar lækkanir á tollum á landbúnaðarvörum á næstunni. Ég er að reyna að rifja það upp með mér hvort það sé eitthvert mál sem teljist stórvægilegt í pólitík sem ég og landbúnaðarráðherra erum ósammála um. Í öllum meginatriðum erum við landbúnaðarráðherrann sammála um þau mál sem við erum að vinna að. Hv. þingmaður þarf því ekki að hafa áhyggjur af því að ég hafi aðrar skoðanir á þessum málum en landbúnaðarráðherrann hefur eða að ríkisstjórnin vinni á þá lund að málum er varða hagsmuni bænda og neytenda að hagsmunir annarra hvorra verði fyrir borð bornir.
Það er auðvitað vandasamt verk að feta þann stíg að bæta bæði hagsmuni neytenda og bænda hvað varðar verð á matvöru þannig að bændur geti vel við unað og neytendur njóti þess að hafa sem best kjör á matvörunni. Við höfum reynt að gera þetta vandlega á undanförnum árum og það mun verða gert áfram og ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af þeim málum í dag.