135. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2008.

NATO-þingið 2007.

449. mál
[14:15]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við erum, eins og í ljós hefur komið, að ræða skýrslu Íslandsdeildar NATO-þingsins fyrir árið 2007 og hefur hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir farið mjög ítarlega yfir skýrsluna. Ég hef svo sem litlu við það að bæta en mig langar til að byrja þar sem hv. þingmaður endaði og þakka starfsfólki Alþingis fyrir alveg frábærlega vel unnin störf þegar NATO-þingið var haldið í haust. Það er svo sannarlega rétt að þar var lyft grettistaki. 50 starfsmenn Alþingis komu að þeirri vinnu og unnu óaðfinnanlegt starf fyrir þennan fund þannig að það ber að þakka það sem vel er gert. Þar var alveg einstaklega vel að verki staðið.

Mig langar til að bæta við örlítið það sem fram kom hjá hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur og nefna kvennafund sem í tvígang hefur verið haldinn á vegum NATO — á fundum þar. Á vorfundinum sem hv. þm. Katrín Júlíusdóttir sótti fyrir okkar hönd á Madeira var haldin sérstök málstofa um konur og öryggismál. Þar var svissneski þingmaðurinn Barbara Hering málshefjandi en hún benti á að ófriður nútímans innan ríkja hefði fyrst og fremst komið niður á konum og börnum. Hún nefndi sem dæmi að 90% fallinna í fyrri heimsstyrjöldinni voru hermenn en 90% fórnarlamba stríðsins á Balkansskaga voru almennir borgarar. Í stríðinu eru konur og börn fórnarlömb skipulegs og heiftarlegs ofbeldis og stríðsátök festa í sessi ójafnrétti sem ríkir á milli kynjanna. Konur hafa aðra sýn á öryggismál en karlar og því er aðkoma kvenna að mótun öryggis- og varnarstefnu og friðarviðræðum nauðsynleg.

Í friðarviðræðum hefur sýnt sig að konur eiga auðveldara með að ná samkomulagi við konur úr andstæðum fylkingum og þær bera málefni barna og kvenna fyrir brjósti. Í umræðunum um erindi Hering lögðu fundarmenn áherslu á nauðsyn þess að samþætta kynjasjónarmið í auknum mæli inn í stefnumálum ríkisstjórna og þjóðþinga á sviði öryggis- og varnarmála.

Slíkur fundur var aftur haldinn í Reykjavík í haust þar sem farið var yfir hrottalegar aðferðir í stríðsátökum þar sem konum er nauðgað og þær beittar alls kyns kynferðislegu ofbeldi sem er skelfilegt. Ég vil taka undir með Barböru Hering þar sem hún segir að konur eigi auðveldara með að vinna saman og að konur verði að taka saman höndum til að vinna að friði á átakasvæðum. Þá vil ég nefna heimsókn tveggja kvenna sem komu hingað nú á dögunum. Önnur konan var frá Ísrael og hin frá Palestínu en þær áttu fund með hæstv. utanríkisráðherra og m.a. konum á Alþingi. Þær héldu mjög áhrifaríkan fund um ástandið í Palestínu og Ísrael. Þær lýstu því hvernig mæður á þessu svæði kvíða því mest að synir þeirra vaxi úr grasi en það var mjög áhrifarík og átakanleg lýsing á ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Þarna hafa konur úr báðum ríkjum, þ.e. Palestínukonur og Ísraelskonur, tekið saman höndum um að koma á friði á þessu svæði.

Ég tók þátt í tveimur fundum á vegum NATO á síðasta ári. Nú í vetur var ráðstefna í Belgrad í Serbíu þar sem Kosovo var mikið til umræðu og þau áform Kosovo að lýsa yfir sjálfstæði. Það verður að segjast eins og er að þar var verulega tekist á. Serbarnir voru mjög mótfallnir sjálfstæðisyfirlýsingunni og Rússarnir einnig og verð ég að segja að það vakti áhyggjur okkar sem sátum þarna á fundinum hversu menn tókust á um þessi mál. En nú hafa þeir lýst yfir sjálfstæði sínu og auðvitað urðu menn varir við andstöðu bæði Serba og Rússa.

Síðan tók ég þátt í kosningaeftirliti á vegum þingmannasamtaka NATO í þingkosningum í Úkraínu 30. september sl. og langar mig af því tilefni að nefna að ég tel mjög mikilvægt að íslenskir þingmenn taki þátt í slíku starfi og að Alþingi hafi frumkvæði að því að þingmenn taki þátt í kosningaeftirliti. Það hefur ekki verið mikið um það á vegum Alþingis. Þingmenn hafa tekið þátt í kosningaeftirliti á vegum alþjóðastofnana eða alþjóðadeilda sem þeir hafa starfað í, eins og t.d. hjá NATO eða á vegum ÖSE en ekki á vegum þingsins. Ég tel að það sé orðið tímabært að þingið hugi að því að taka þátt í slíku starfi eins og önnur þjóðþing sem senda þingmenn í slíkt eftirlit. Það er mjög mikilvægt, sérstaklega í þeim ríkjum sem eru að byggja upp lýðræðishefð sína að þingmenn fari og sinni eftirliti í kosningum.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Það væri auðvitað hægt að fara yfir ýmsa þætti en hv. þm. Ragnheiður Elín Árnadóttir fór ágætlega yfir þau mál. Ég vísa í skýrsluna sem er mjög ítarleg og góð um störf nefndarinnar á síðasta ári og tek undir þakkir til ritara okkar, Stígs Stefánssonar. Hann hefur sinnt því starfi af mjög miklum áhuga og dugnaði eins og reyndar öllu því starfi sem hann hefur sinnt fyrir alþjóðadeild þingsins því að ég naut einnig starfa hans hjá Norðurlandaráði. Ég tek því undir þakkir til starfsmannsins og læt máli mínu lokið.