135. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2008.

staða sjávarplássa landsins.

[15:17]
Hlusta

Guðni Ágústsson (F):

Hæstv. forseti. Einhvern tíma var sagt: „Það er kjarkmaður, Kolbeinn í Dal.“ Það verður að segjast eins og er að kjarkmaður er hv. þm. Árni Johnsen að koma hér og hjóla í fjármálaráðherra sinn og segja sannleikann, segja það sem við framsóknarmenn sögðum strax í sumar að rothögg sjávarbyggðanna blasir við. Hann gerði það sem hvorki Samfylkingin né Sjálfstæðisflokkurinn hafa gert, hann fór í ferðalag. Hann talaði við 27 bæjarstjóra og þeir sögðu frá því hvernig aðgerð ríkisstjórnarinnar er að leika þessar byggðir og nú kemur hv. þingmaður áhyggjufullur hér inn. Ég bið hann um að flytja þennan húslestur í þingflokki Sjálfstæðisflokksins dag hvern og telja upp allt þetta fólk sem hann hitti og drakk kaffi með. Það þjáist undan aðgerðum ríkisstjórnar sem skar niður þorskveiðarnar með svo harkalegum hætti að byggðunum blæðir og mótvægisaðgerðir Samfylkingarinnar voru háðung og dónaskapur við vinnandi fólk.

Við framsóknarmenn sögðum strax fyrir að þarna væri of langt gengið, 150–160 þúsund tonna kvóti mundi breyta miklu, ef ekki væri farið lengra en það, og hjálpa byggðunum. Að taka 15–20 milljarða út úr hagkerfi sjávarbyggðanna með einu pennastriki hlaut að hafa þær afleiðingar að skipunum fækkar í höfnunum, fiskverkafólkið missir vinnuna, sjómennirnir ganga í land. Þetta vissum við allt. Ég vil því segja um mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar: Þetta er hrein hundalógík svo ég tali íslensku, hrein hundalógík. Þetta eru ekki smáskammtaaðgerðir, þetta er útúrsnúningur og móðgun við vinnandi fólk. (Forseti hringir.) Ég segi við ríkisstjórnina: Vaknið og vinnið ykkar verk. Farið í ferðalag eins og hv. þm. Árni Johnsen, talið við fólkið í landinu, finnið nýjar mótvægisaðgerðir eða leyfið aðeins meiri veiðar úr þorskstofninum. Það mun ekki saka hann. Svo kom loðnuáfallið í ofanálag.