staða sjávarplássa landsins.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir það að þessi umræða skuli tekin upp af hv. þm. Árna Johnsen. Það er ekki vanþörf á að minna ríkisstjórnina á í hvaða vegferð hún er. Það er eins og menn fljóti sofandi að feigðarósi. Það er eins og menn viti ekki hvernig byggðaþróunin er í landinu eins og sýnt er á þessari mynd þar sem svörtu reitirnir sýna meira en 10% fækkun og gráu á milli 1% og 9%. Það er eins og menn viti ekki hvaða afleiðingar það mun hafa ef þorskkvótinn er skorinn niður með þeim hætti sem gert hefur verið. Það er eins og menn viti ekki hvaða afleiðingar það hefur fyrir vaxtarsprota eins og veiðar þar sem erlendir ferðamenn geta tekið þátt í sjóstangaveiði, hvaða áhrif það hefur ef fara á að krefjast þar kvótasetningar í því niðurskurðarferli þorskkvóta sem er við lýði. Hvar eiga þau fyrirtæki að ná í þann kvóta? Það er eins og ríkisstjórnin viti ekki hvað hún er að aðhafast í þessu máli. Svo koma menn og segja: Það er ekki ástæða til mikillar svartsýni. Hæstv. fjármálaráðherra sagði fyrr á þessu þingi að ekki væri líklegt að það kæmi til fjöldaatvinnuleysis á næstu mánuðum.
Hver halda menn að staðan verði þegar þorskkvótinn er búinn í lok apríl? Hver halda menn að staðan verði í hinum dreifðu sjávarbyggðum? Því miður verður hún afar erfið og ekki er brugðist við með þeim hætti sem þarf að gera. Það þarf að auka við þorskkvótann, gefa þarf frelsi til rækjuveiðanna, það er í raun og veru lögbrot að halda þeim inni í kvótakerfi. Rækjan er vannýttur stofn og búin að vera það í nokkur ár. Það er ýmislegt hægt að gera, hægt er að taka upp tillögu okkar frjálslyndra um að leyfa takmarkað frelsi til handfæraveiða. Það er margt hægt að gera til að spýta nýju lífi inn í sjávarbyggðirnar. (Forseti hringir.) Það er akkúrat þar sem taka þarf á vegna þess að aðgerðirnar hitta ekki í mark, svokallaðar mótvægisaðgerðir.