endurskoðun úthlutunar á þorskkvóta.
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega rangt sem hv. þingmaður heldur fram, að það hafi aldrei verið gefinn út aukinn kvóti á grundvelli togararalls. Við vitum það og sjáum það bara með því að skoða tölurnar aftur í tímann að það hafa sem betur fer komið ár þar sem við höfum séð auknar aflaheimildir sem hafa verið gefnar út einmitt á grundvelli rannsókna, einmitt á grundvelli togararallsins. Það stenst því alls ekki sem hv. þingmaður hélt fram, fyrir nú utan að það er ekki svo að eingöngu sé stuðst við togararallið þegar verið er að meta stofnstærðina. Það er ýmislegt fleira sem notað er, m.a. er höfð hliðsjón af netarallinu. Hins vegar er alveg rétt að netarallið gaf vísbendingar um … (Gripið fram í.) Fyrirgefðu, hv. þingmaður, ég er að tala. Það var þannig á síðasta ári að netarallið gaf vísbendingu um stærri veiðistofn en á árunum á undan var vísbendingin hins vegar í hina áttina. Vildi hv. þingmaður þá skera aflaheimildirnar meira niður en gert var t.d. í hittiðfyrra og árið þar á undan af því að netarallið gaf þá lakari vísbendingar?
Hv. þingmaður verður auðvitað að (Forseti hringir.) vinna þannig og tala þannig og reyna að hugsa einhvern tímann rökrétt en fara ekki bara eftir einhverri hentistefnu (Forseti hringir.) sem honum hentar hverju sinni.