135. löggjafarþing — 77. fundur,  12. mars 2008.

öryggismál í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

[14:00]
Hlusta

Bjarni Harðarson (F):

Herra forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. samgönguráðherra. Flugmál og flugstöðvamál eru okkur framsóknarmönnum að vonum hugleikin þessa dagana því þar er víða úrbóta þörf.

Komið hefur fram í fréttum að stefnt er að stórfelldum niðurskurði og mjög alvarlegum niðurskurði á útgjöldum lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum sem mun bitna mjög harkalega á öllum rekstri innan Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Hér er um að ræða mál sem snertir þjóðina alla með mjög afdrifaríkum hætti og ég hefði auðvitað gjarnan viljað ræða þetta við dómsmálaráðherra en málið kemur líka á borð samgönguráðherra vegna reksturs Flugstöðvarinnar. Það má búast við því, eftir því sem kunnugir menn segja mér, að farþegar sem ætli sér að fara út kl. 8 að morgni nú í sumar þurfi að vera mættir upp í Leifsstöð kl. 3 að nóttu.

Það má líka búast við því að afgreiðslutími í landamæradeildunum verði allt upp í fimm sinnum lengri en hann er núna. Þá má líka búast við því sem er kannski það allra alvarlegasta við þetta, að öll gæsla varðandi fíkniefni, varðandi hugsanlega brotamenn verði mikið lakari en nú er ef þessar fyrirætlanir ganga eftir og þrátt fyrir að fundur hafi verið haldinn með aðilum í dómsmálaráðuneytinu í vikunni er einhvern veginn ekkert í spilunum í dag sem bendir til að lausn sé í farvatninu. Málið kemur einnig mjög til kasta samgönguráðherra vegna þess að rekstur Flugstöðvarinnar er í rauninni settur í mjög alvarlega pattstöðu með þessum niðurskurði og ekki séð hvernig þar á að vinna úr og óánægja starfsfólks þar er mjög megn og mikil á öllum sviðum og ástandið er grafalvarlegt. Þess vegna óska ég eftir svörum hæstv. samgönguráðherra, til hvaða ráðstafana hann hefur hugsað sér að grípa í þessu sambandi.