135. löggjafarþing — 78. fundur,  12. mars 2008.

kræklingarækt.

382. mál
[16:02]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Það er fagnaðarefni að í þingsölum skuli að frumkvæði hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur rætt um kræklingarækt. Ég tek undir með síðasta ræðumanni um að það er ánægjulegt að vita til þess að hafin er athugun á því í sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneyti að efla þessa starfsemi. Taka stöðuna út.

Það er ljóst af svörunum að um 30 millj. kr. á fimm til átta árum eru ekki háar fjárhæðir í sjálfu sér. Þetta hefur væntanlega farið til rannsókna og frumbýlingsverkefna. En ég þekki af eigin raun hversu dýrt getur verið að koma slíku af stað. Eins og ráðherrann nefndi áðan getur óveður fljótt þurrkað út þá fjárfestingu og sent út í bláinn.

Það er mikilvægt að líta til fleiri landsvæða en Eyjafjarðar. Ég vil sérstaklega nefna Breiðafjörð, (Forseti hringir.) einn lífríkasta og fjörumesta fjörð við Ísland.