135. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2008.

almannatryggingar og málefni aldraðra.

410. mál
[11:06]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Áður en forseti gefur framsögumanni meiri hluta nefndarinnar, sem leggur fram breytingartillögur, orðið vil ég geta þess að við munum ganga til atkvæða strax og umræðu er lokið. Vil ég því biðja hv. þingmenn um að vera innan seilingar því að gert hafði verið ráð fyrir að ljúka umræðu um þetta mál innan tíðar.