135. löggjafarþing — 80. fundur,  13. mars 2008.

upprunaábyrgð á raforku.

271. mál
[15:45]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Hér skipast fljótt veður í lofti. Þegar ég hringdi til Alþingishússins fyrir tíu mínútum var verið að ræða mál nr. 3 á dagskrá og það næsta sem ég vissi var að níunda málið var komið á dagskrá og þá væntanlega verið að ljúka fundi í dag.

Hér ræðum við frumvarp til laga um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum eins og framsögumaður iðnaðarnefndar, hv. þm. og formaður nefndarinnar, Katrín Júlíusdóttir, gerði grein fyrir.

Í nefndaráliti með breytingartillögum kemur fram að Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á þeim fundi sem málið var afgreitt, skrifar undir álitið með fyrirvara.

Frú forseti. Strax við 1. umr. þessa máls gerði talsmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Kolbrún Halldórsdóttir, athugasemdir við tvö atriði sérstaklega sem snerta þetta mál. Ég ætla að leyfa mér að taka örfáar mínútur til þess að rifja það upp.

Í fyrsta lagi þarf að vera alveg ljóst að þetta frumvarp ef að lögum verður skilgreinir ekki alla jarðvarmaorku eða vatnsorku eða önnur orkuform sem endurnýjanleg eða sjálfbær. Til þess þurfa að koma önnur viðmið og ég minni á þingsályktunartillögu sem ég hef ásamt öðrum þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs lagt hér fram, um rannsóknir og sjálfbæra vinnslu jarðhitasvæða.

Það kom fram í máli hæstv. ráðherra Össurar Skarphéðinssonar þegar hann gerði grein fyrir frumvarpinu við 1. umr. að það stæði ekki til að veita neinn afslátt á þeim grænu vottorðum sem kunna að vera gefin út samkvæmt þessum lögum og tilskipun Evrópusambandsins sem þau eru til staðfestingar á. Það er að segja að ef til þess kæmi að efast væri um að raforkan sem framleidd væri, við skulum segja í jarðhitavirkjun eða vatnsaflsvirkjun, væri í rauninni endurnýjanleg orka og það kæmu fram ábendingar um að hún væri alls ekki unnin eða framleidd með sjálfbærum hætti þá stæði ekki til að gefa vottorð út á slíkt og er það vel.

Það var gengið eftir því í nefndinni að vita hvernig ætti að leggja mat á þessa hluti. Við afgreiðslu nefndarinnar kom skýrt fram að það væri Orkustofnunar en ekki Landsnets, sem á að sjá um sjálfa útgáfu vottorðanna, að leggja mat á það hvort virkjanir, hvort heldur eru í vatnsafli eða raforku, væru sjálfbærar og ekki stæði til að slegið yrði af þeim kröfum. Þá er ég komin að því, frú forseti, hverjar þær kröfur eru.

Nú ber svo vel í veiði að ég kom hér hlaupandi af ársfundi Orkustofnunar þar sem einmitt í þessum töluðu orðum er verið að flytja erindi um sjálfbæra nýtingu jarðhitasvæða og sjálfbæra vinnslugetu jarðhitakerfa en Jónas Ketilsson, jarðhitasérfræðingur á Orkustofnun, er þar að flytja erindi. Erindið er einnig prentað og ég fékk að hafa það með mér af ársfundinum.

Í fyrirlestrinum hjá Orkustofnun í dag var ítrekað að Orkustofnun hefur frá 2001, í sérstökum sérfræðingahópi, reynt að meta það hvernig hægt er að skilgreina sjálfbæra nýtingu jarðhitakerfanna. Á árinu 2001 var gefin út sú skilgreining að fyrir sérhvert jarðhitasvæði og sérhverja vinnsluaðferð er til ákveðið hámarksvinnslustig. Því hámarksvinnslustigi er þannig háttað að með lægra vinnslustigi er hægt að viðhalda óbreyttri orkuvinnslu frá kerfinu yfir mjög langt tímabil sem er 100–300 ár. Ég legg áherslu á þessa skilgreiningu að Orkustofnun miðar við að sjálfbær nýting á jarðhitasvæðum sé 100–300 ár óbreytt orkuvinnsla frá kerfinu. Jarðvarmavinnsla, minni eða jöfn en þetta hámarksvinnslustig er þá skilgreind sem sjálfbær vinnsla en vinnsla umfram hámarksvinnslustigið er ekki sjálfbær.

Það er mjög mikilvægt, frú forseti, að menn átti sig á þessum skilgreiningum sérstaklega þegar menn berja hér bumbur ekki aðeins innan lands heldur út um allar jarðir og auglýsa sjálfbærni og endurnýjanlega orkugjafa okkar Íslendinga. Það er nefnilega ekki sama hvernig við nýtum þá.

Orkustofnun hefur, eins og ég nefndi, á undanförnum árum haft starfandi vinnuhóp til þess að meta hver sjálfbær vinnslugeta jarðhitakerfa er. En verkefnisstjórn rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæða hefur einnig fengið það sérstaka verkefni úr hendi iðnaðarráðherra að meta sjálfbæra vinnslugetu jarðhitakerfa. Þetta er sem sagt hliðstætt verkefni því sem Orkustofnun hefur verið að vinna að og það kom fram á ársfundi Orkustofnunar í dag að það muni verða reynt að sameinast um ofangreint málefni.

Það er mjög mikilvægt, frú forseti, að það verði gert. Annars vegar er hér um að ræða Orkustofnun sem er að meta þetta og þá frekar með tilliti til hámarksnýtingar eins og rakið er í gögnum á ársfundinum og hins vegar verkefnisstjórn rammaáætlunar sem hugsar kannski ekki um hámarksnýtinguna heldur um það að halda jafnvægi á milli vinnslu í anda sjálfbærrar þróunar, jafnvægi milli vinnslu og umhverfis.

Í þeirri þingsályktunartillögu sem ég nefndi áðan er gert ráð fyrir því að skipuð verði sérstök nefnd á vegum þingsins til þess að meta þessa hluti. Eftir að hafa hlýtt á fyrirlestra á ársfundi Orkustofnunar í dag er ég ekki frá því, frú forseti, að það sé mjög brýnt vegna þess að í orðanna hljóðan felst að reynt verði að sameinast um mat á þessu en að mínu mati lýsir það ekki nægilega miklum metnaði.

Frú forseti. Fyrirvarar okkar í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði við þetta mál eru aðallega fólgnir í þessu. Ég vil ítreka að það er skilningur okkar með tilvísan til þeirra gagna sem lögð voru fram í nefndinni og til orða ráðherra í framsögu með þessu máli á sínum tíma, að það er hlutverk Orkustofnunar að meta það og hún hefur þegar metið það og lagt til grundvallar matið frá 2001 og 2006 um hvað teljist sjálfbær nýting jarðhitasvæða og annað verði ekki gefið út vottorð á.

Ég hlýt að nefna það þó að hér sé einungis verið að tala um jarðhitasvæði, að vatnsorkuvirkjanir eru heldur ekki í eðli sínu sjálfbærar. Ég ætla að leyfa mér, frú forseti, að lesa eftirfarandi vangaveltur úr 6. kafla í skýrslu verkefnisstjórnar um 1. áfanga rammaáætlunar, um sjálfbærni vatnsorkuvirkjana. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í alþjóðasamfélaginu hafa verið skiptar skoðanir um hvernig ætti að flokka vatnsorku í þessu tilliti. Almennt er viðurkennt að fella megi nýtingu vatnsorkukosts í flokk endurnýjanlegra ef aurfylling og landnotkun eru óveruleg. Hvað er óverulegt í þessu tilliti? Einn mikilvægur mælikvarði er eflaust endingartími virkjunar. Hvað er hæfilegt í því sambandi, t.d. í samanburði við endingartíma annarra orkugjafa?“

Þetta gefur tilefni til vangaveltna um það hvernig flokka eigi Kárahnjúkavirkjun sem oft er rætt um sem sjálfbæra og endurnýjanlega orku. En útilokað er að telja að náttúrulegt umhverfi vatnsorkukostsins við Kárahnjúkavirkjun sé endurheimtanlegt og einnig að virkjunin, einkum Hálslón, hafi óveruleg áhrif á vistgæði svæðisins heldur þvert á móti óafturkræf áhrif.

Hið sama er upp á teningnum þegar litið er til græðgisvæðingarinnar sem nú fer um landið eins og eldur í sinu í nýtingu háhitasvæðanna okkar. Það hefur verið upplýst að á Hellisheiðinni er fyrirhugað að virkja við Hverahlíð og í Bitru með svokölluðum ágengum hætti, þ.e. ekki að fara í stöðuga vinnslu sem heldur kerfinu í jafnri nýtingu yfir 100–300 ár, né heldur að auka vinnsluna hægt í nokkrum skrefum þangað til sjálfbærri vinnslugetu er náð, heldur með því móti að pína svæðið til hámarksafkasta í stuttan tíma jafnvel 30–50 ár, en síðan stöðuga en mun minni vinnslu næstu 150–170 árin. Það er ljóst að vinnslugeta að loknu svona ágengu tímabili yrði þá mun minni en sjálfbær vinnslugeta svæðis við stöðuga vinnslu og getur því á engan hátt talist sjálfbær.

Frú forseti. Annað atriði sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð gerði fyrirvara við við 1. umr. um þetta frumvarp var að við töldum ekki eðlilegt eða nauðsynlegt að fela Landsneti útgáfu þessara vottorða og þaðan af síður það sem stendur í frumvarpinu um að Landsneti væri síðan heimilt að framselja þá leyfisveitingu til annarra aðila. Það hefur verið upplýst að þetta mál muni verða endurskoðað eftir einhvern tiltekinn tíma og við áskiljum okkur allan rétt til athugasemda við einmitt þetta atriði.

En frú forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna frekar og ég hef hér gert grein fyrir þeim fyrirvörum sem þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa gert við málið.