135. löggjafarþing — 80. fundur,  13. mars 2008.

stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl.

471. mál
[17:06]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Má ég fyrst nota för mína í ræðustól til að bæta við aðeins einu atriði sem ég gleymdi frá hv. þm. Ólöfu Nordal varðandi 2. mgr. 4. gr. Sambærilegt ákvæði og hún rakti sérstaklega með Flugstoðir, um að félagið megi taka þátt í atvinnustarfsemi. Þá vil ég bara segja að það er auðvitað mikill munur hvort félagið stuðlar að eða tekur þátt.

Varðandi andsvar hv. þm. Ögmundar Jónassonar og þá fyrst um slökkviliðið og flugvelli og bæi. Hann talar um að sig skorti þekkingu til að bera það saman. Allt í lagi með það, en ég hef kynnt mér þessa starfsemi, m.a. á Keflavíkurflugvelli og þar er ekki verið að gefa afslátt af neinum kröfum eða stöðlum eða öryggisatriðum. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að það eru sennilega hvergi eins ströng skilyrði sett og í flugstarfsemi hvað allt slíkt varðar. Ég er alveg viss um það og veit að þau eru þar í fínu standi og það er enginn afsláttur gefinn á því.

Út af því sem hv. þingmaður ræddi um, að við séum ekki skoðanabræður hvað varðar hlutafélög og ekki hlutafélög. Hann upplýsti að hann hefði ekkert á móti hlutafélögum per se, þar sem þau eiga við, en það sé verra þegar aðeins einn hluthafi heldur á hlutabréfinu. Og þá er spurningin: Er hv. þingmaður að mæla með því að við stækkum hluthafahópinn í því opinbera hlutafélagi sem við erum að tala um? Ekki er hv. þingmaður að kalla eftir því?