135. löggjafarþing — 81. fundur,  31. mars 2008.

hljóð- og myndupptökur frá Alþingi.

[15:05]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill við þetta tækifæri skýra frá því að nú hefur verið opnaður á vef Alþingis aðgangur að hljóð- og myndupptökum af umræðum á þingfundum og eru þær aðgengilegar í lok fundar en hljóðupptökurnar um leið og ræðu lýkur. Ég vona að þessi tækni auðveldi enn aðgang almennings að þingræðum og geri jafnframt störf fréttamanna sem fylgjast með störfum Alþingis þægilegri viðfangs.