135. löggjafarþing — 81. fundur,  31. mars 2008.

tilkynning um dagskrá.

[15:07]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Að loknum atkvæðagreiðslum á eftir fer fram umræða utan dagskrár um ástand í efnahagsmálum. Málshefjandi er hv. þm. Guðni Ágústsson. Hv. forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 3. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í eina klukkustund.