135. löggjafarþing — 81. fundur,  31. mars 2008.

almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

[15:27]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Samfylkingin hélt um helgina flokksstjórnarfund og fjallaði um græna hagkerfið og því ber að fagna. Við vinstri græn höfum rætt um græna hagkerfið og verið með hugmyndir um að þar þurfi að taka til hendinni. Nú er það svo að hæstv. samgönguráðherra hefur tækifæri til að gera verulega mikið í þessum efnum. Borist hafa fréttir af því að borgarráð hafi samþykkt að kanna möguleika á kostum lestarsamgangna á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar og borgarráð mun hafa ákveðið að leita eftir samstarfi við ríkisstjórnina varðandi það verkefni. Það segir í ályktun borgarráðs að það sé reiðubúið að leggja 10 millj. kr. til verkefnisins að því tilskildu að ríkið greiði helming kostnaðar á móti borginni. Því er rétt að spyrja hæstv. samgönguráðherra hvort erindi af þessu tagi hafi komið til samgönguráðuneytisins og hvort hæstv. ráðherra hafi tekið afstöðu til þess.

Að sama skapi langar mig til að spyrja hvort hugmyndir um almenningssamgöngur í Reykjavíkurborg séu ekki brýnar núna á þessum tímapunkti þegar bensínverð heldur áfram að rjúka upp. Og mig langar til að vita hvort hæstv. samgönguráðherra sjái ekki í hendi sér að ríkisstjórnin geti tekið þátt í að efla almenningssamgöngur í borginni, t.d. með því að leggja fjármuni í að búa til sjálfstæða rein fyrir strætisvagna og leigubíla. Við horfum fram á það að samgöngubótinni Sundabraut er eilíflega frestað. Höfuðborgarbúar þurfa verulega á því að halda að fá öflugar almenningssamgöngur í borginni. Það yrði þungt lóð á vogarskál græna hagkerfisins, umhverfismálanna, það yrði veruleg bragarbót hvað varðar samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Ég tel að þetta megi spyrða saman, þ.e. hugmynd borgarráðs um samstarf við ríkið í þeim efnum að leita eftir könnun á lestarsamgöngum og að ríkið taki þátt (Forseti hringir.) í að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.