ástandið í efnahagsmálum.
Frú forseti. Það er óhætt að segja að við glímum nú við meiri og flóknari vanda í efnahagsmálunum en við höfum glímt við um langa hríð, enda höfum við búið við einstakt góðæri á undanförnum árum.
Í fyrsta lagi var viðbúið að erlendar fjárfestingar vegna orkuframkvæmda og stóriðju á Austurlandi drægjust saman. Síðan er um að ræða aflasamdrátt og þar ofan á hækkanir á ýmiss konar erlendum aðföngum. Í þriðja lagi er það svo hin alþjóðlega lánsfjárkreppa, svokölluð Wall Street-krísa.
Merkin sem við sjáum á Íslandi í dag eru aðallega áhrif á bankana sem hafa síðan áhrif á gengið og þá á verðlagið með hækkunum erlendum á aðföngum sem ég nefndi áðan. Hjól atvinnulífsins snúast þó enn nokkuð smurt og síðustu atvinnuleysistölur eru lægri en tölur í sama mánuði fyrir ári síðan.
Við þessum vanda hafa stjórnvöld brugðist. Það kemur fram í fjárlagafrumvarpinu. Eins og ég sagði áðan var hluti af þessu fyrirséður með auknum útgjöldum til þess að bæta innviðina, eins og hv. þingmenn hafa nefnt hér í umræðunni, og til þess að bæta velferðar- og menntakerfið.
Eftir áramótin náðust kjarasamningar á almennum markaði og ríkisstjórnin lagði sitt af mörkum til þess að þau mættu nást. Það hlýtur að vera gríðarlega mikilvægt í þeirri stöðu sem við fjöllum um hérna að kjarasamningar séu í gildi í landinu. Þar leggur ríkisstjórnin til lækkaða skatta á fyrirtæki, hækkun skattleysismarka og persónuafsláttar, rýmkun og hækkun á bótum, niðurfellingu á stimpilgjaldi við fyrstu kaup auk þess sem í undirbúningi eru sérstakar aðgerðir til þess að hvetja til sparnaðar.
Seðlabankinn hefur rýmkað þær reglur sem hann hefur til þess að geta aðstoðað bankana í þeirra stöðu og ríkissjóður hefur komið með tvær nýjar útgáfur á ríkisbréfum til þess að þróa og bæta þennan markað.
Staða ríkissjóðs er góð. Hún hefur sennilega aldrei verið betri en hana verðum við bæði að varðveita og nýta til þess að takast á við þennan vanda. Við þurfum að hvetja (Forseti hringir.) til aukinnar fjárfestinga, taka vel á móti þeim sem vilja fjárfesta hjá okkur og hegða okkur skynsamlega við að styrkja atvinnulífið.