135. löggjafarþing — 81. fundur,  31. mars 2008.

starfsemi Breiðavíkurheimilisins 1952–1979.

429. mál
[18:17]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég þarf ekki að lengja þessa umræðu mikið af minni hálfu eða okkar þingmanna Vinstri grænna. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir fór vel yfir málin fyrir okkar hönd í ræðu sinni. Ég fagna því fyrst og fremst að þessi skýrsla er fram komin og til umræðu. Hún er að mínu mati gagnlegt og gott fyrsta skref af hálfu núverandi stjórnvalda til að takast á við þessi mál. Ég tek undir þakkir til þeirra sem hafa átt sinn þátt í að upplýsa það og koma því fram í dagsljósið, þ.e. þakkir til listamanna og þeirra sem tekið hafa það kjarkmikla skref að vitna um dvöl sína og þjáningar þarna. Það er mikilvægt til að menn fái reynslusögur frá fyrstu hendi.

Það er jafnframt ákaflega mikilvægt að allt sé gert á eins vandaðan og yfirvegaðan hátt og hægt er af hálfu samfélagsins til þess að takast á við þessa hluti og bæta úr því sem enn er hægt að bæta úr, eftir því sem það er þá yfir höfuð hægt. Til þess bera menn ríkar skyldur. Þegar menn hafa í fyrsta lagi horfst í augu við hlutina og viðurkennt það sem fór úrskeiðis hljóta menn jafnframt að horfa til ábyrgðar sinnar á að bregðast við í samræmi við það.

Það eru leiddar svo sterkar líkur að því í skýrslunni að segja má að sannað sé að þarna hafi gerst hlutir sem ekki eru verjanlegir eða réttlætanlegir þrátt fyrir að á hinn bóginn sé hægt að segja til einhverra málsbóta, eins og komið er inn á á bls. 19 í skýrslunni og nefndarmenn biðja menn að hafa í huga, að það eru misvísandi lýsingar á því hvernig mönnum leið þarna o.s.frv. Sumir bera dvölinni þokkalega söguna. Það er alls ekki þannig að allir starfsmenn eða forstöðumenn fái þarna áfellisdóm. Þótt það komi kannski ekki beint fram í skýrslunni, sem ég hélt þó að yrði, verður að sjálfsögðu alltaf að hafa í huga aðstæður og tíðaranda hvers tíma þegar liðnir atburðir eru skoðaðir og metnir. En þar með er það líka upp talið í aðalatriðum sem hægt er að segja að sé til einhverra málsbóta, ef málsbætur má kalla í þessu tilviki.

Að hinu leytinu er alveg ljóst að samfélagið brást þeim sem síst skyldi. Þarna áttu sér stað mjög alvarleg mistök og það verður að viðurkenna og bregðast við í samræmi við það. Brotinn lífsferil, ógæfu, þjáningar og erfiðleika sem viðkomandi einstaklingar og fjölskyldur þeirra rötuðu síðan í í framhaldinu er að sjálfsögðu aldrei hægt að bæta, hvorki með fé né með afsökunarbeiðnum. En slíkt er þó það minnsta sem hægt er að gera til að reyna að koma til móts við fórnarlömbin og viðurkenna ábyrgð samfélagsins á þessum hlutum þótt ekki sé nema með táknrænum hætti.

Ég tek undir það sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir nefndi hér að formleg og einlæg afsökunarbeiðni á að vera hluti af uppgjöf þessa máls. Hún á að koma fram á vel völdum tíma. Það er í sjálfu sér ekki þörf á að bíða lengur hvað varðar vistmennina á Breiðavíkurheimilinu en við vitum að það er fleira í pokanum en það sem þar gerðist og stendur til að rannsaka. Auðvitað má velta því fyrir sér hvort bíða eigi með málin í heild þangað til öll hliðstæð tilvik, hliðstæð heimili eða hliðstæðar stofnanir hafa verið rannsakaðar eins og til stendur að gera á næstu þremur árum, ef ég hef tekið rétt eftir. En mér finnst það alveg sjálfsagður hlutur að stjórnvöld, ríkisstjórn og Alþingi eða einhver fyrir þeirra hönd biðjist afsökunar úr ræðustóli á Alþingi. Það er rétti staðurinn til þess og mér sýnist að þörf geti verið á því að slíkt hið sama sé gert hinum megin við Vonarstrætið í fundarsal borgarstjórnar Reykjavíkur.

Ég vil nefna hliðstæðuna þegar nýlega skipaður eða kosinn forsætisráðherra Ástralíu efndi það kosningaloforð sitt að biðja frumbyggja þess lands formlega afsökunar á tilteknum misgerðum úr ástralskri sögu og þar komu m.a. við sögu hlutir sem eru um sumt hliðstæðir þessum. Börn voru fjarlægð frá fjölskyldum sínum og vistuð. Það var reisn og sómi að því að heyra forsætisráðherra Ástrala biðjast afsökunar á þeim hlutum. Mér finnst líka að spurningin um miskabætur sé ekki fyrst og fremst spurning um lagalega skyldu og ekki heldur um hvað er fyrnt og hvað er ekki fyrnt í þeim efnum. Það er spurning um siðferðislega ábyrgð og að sýna með táknrænum hætti að menn vilji axla hana. Þannig er gjarnan á það litið. Þar sem menn hafa verið að gera upp erfiða og sársaukafulla hluti í sögu þjóða sinna víkja þeir til hliðar hinum þrönga lagabókstaf. Frekar er horft til þess sem er rétt í siðferðislegum skilningi og ábyrgt og látið þá einu máli gilda hvernig einstök tilvik eru eða hversu auðvelt er að sanna þar bótarétt og hvort hann er virkur eða fyrndur.

Við þurfum að gera upp ýmis fleiri mál í sögu okkar. Það stendur til og það er gott. Fyrir utan þau heimili sem hér eiga í hlut er náttúrlega óuppgerð sú saga sem lýtur að þvinguðum vönunum á fötluðu fólki á löngu árabili í sögu okkar og fleira mætti nefna. Við eigum að nálgast það allt með sama hugarfari, ábyrgt og yfirvegað, af auðmýkt gagnvart því sem við verðum að horfast í augu við og gera upp sem samfélag. Þá eru bætur ákaflega sterk táknræn aðgerð af hálfu samfélagsins til að axla ábyrgð og viðurkenna hana sem gengur lengra á sinn hátt en afsökunarbeiðni sem er almenns eðlis, svo góð sem hún er. Þessa leið hafa t.d. frændur okkar Norðmenn valið í mörgum hliðstæðum tilvikum. Ég vil nefna eitt enn þar til sögunnar þó að annars eðlis sé og það eru ólögmætar frelsiskerðingar. Það eru njósnir um borgara sem engin stoð reyndist fyrir og ástæðulausar voru. Fullkomlega tilefnislausar símhleranir sem borgarar sættu og eru ærumeiðandi fyrir þeirra hönd eða afkomenda þeirra þar sem í raun og veru var gripið til lagaúrræða sem fjalla um landráð eða þjóðhættulega starfsemi til að réttlæta persónunjósnirnar. Burt séð frá öllum miska, beinum eða óbeinum, þá finnst mér að við slíkar aðstæður eigi samfélagið að viðurkenna ábyrgð sína m.a. með táknrænum bótagreiðslum. Í hugum mjög margra eru það að sjálfsögðu ekki peningarnir sem skipta þar sköpun, hvorki upphæðir þeirra né annað heldur fyrst og fremst sú táknræna viðurkenning á því að gert var á hlut þeirra. Það er það sem felst í greiðslunni.

Næstu skref í málinu eru afar mikilvæg og mér finnst gott að heyra að það er almennur samhljómur í umræðum um að málinu verði haldið áfram í þeim farvegi sem það er komið í og að frumvarp til greiðslu sem opnar möguleikana á greiðslu bóta komi til kasta þingsins strax á vordögum. Ég held að það sé algerlega bráðnauðsynlegt að stofna til lagaheimilda til fullnustu slíkra hluta. Það þarf að sjálfsögðu að vanda það og skiptir máli hvernig það er úr garði gert en mér finnst það einboðið að það hljóti að vera á formi hinnar almennu nálgunar. Það kemur auðvitað ekki til greina að einstaklingar, hver fyrir sig eða aðstandendur þeirra, þurfi að standa í því að reka mál hver um sig og sanna rétt sinn. Það á að byggja á þessum grunni sem ég hef farið yfir, að um almenna viðurkenningu samfélagsins og stjórnvalda sem nú fara með völdin, sé að ræða og um táknræna viðurkenningu. Samtímis verði það undirbúið á vel völdum tímapunkti að bera fram formlega afsökunarbeiðni.