135. löggjafarþing — 82. fundur, 1. apr. 2008.
tilkynning um dagskrá.
Um klukkan tvö í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram utandagskrárumræða um Sundabraut. Málshefjandi er hv. þm. Birkir Jón Jónsson. Hæstv. samgönguráðherra, Kristján L. Möller, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.