135. löggjafarþing — 82. fundur,  1. apr. 2008.

Sundabraut.

[14:26]
Hlusta

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf):

Frú forseti. Það mál sem við ræðum í dag á sér mjög langa forsögu. Saga Sundabrautarmálsins, held ég, þegar fram líða stundir verður örugglega skráð á spjöld sögunnar. Menn hafa hér rætt málið frá ýmsum hliðum og ég hygg að þeir sem hlusta á þessa umræðu velti fyrir sér spurningunni hvers vegna í ósköpunum ekki sé búið að taka af skarið, hvers vegna í ósköpunum menn hafi ekki hafist handa. Svarið við þeirri spurningu er einfalt. Það hafa verið mjög skiptar skoðanir um legu brautarinnar í tólf ár vil ég leyfa mér að segja, skiptar skoðanir innan flokka í borgarstjórn Reykjavíkur, skiptar skoðanir á Alþingi Íslendinga og ekki síður ágreiningur milli Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar um legu Sundabrautar.

Nú er það hins vegar að baki, þ.e. ágreiningurinn innan borgarstjórnar Reykjavíkur og ég vil leyfa mér að fullyrða líka ágreiningurinn á hinu háa Alþingi því síðast þegar við ræddum þetta mál hér þá tjáðu sig fulltrúar allra stjórnmálaflokka um að ysta leið í göngum væri sú leið sem bæri að fara. Við erum að því leytinu til á öðrum tímapunkti núna í Sundabrautarmálinu. Það er þverpólitísk samstaða allra að fara þessa leið.

Hæstv. ráðherra samgöngumála hefur lýst því yfir að hann sé ekki tilbúinn til þess að segja sína afstöðu í málinu. Ég virði afstöðu ráðherrans þó ég sé ekki sammála henni. Ég hef talað fyrir því að við tækjum af skarið og færum ystu leiðina í göngum. Ég trúi því og treysti að sú verði niðurstaðan og ef framkvæmdin hefst verður hægt að bjóða hana út í byrjun árs 2009. Þá er það vel og þá hillir undir að þetta stóra mannvirki sem við höfum beðið eftir (Forseti hringir.) allt of lengi verði loksins að veruleika.