Sundabraut.
Frú forseti. Það er engin deila um að Sundabraut, eins og aðrar meginumferðaræðar út frá höfuðborgarsvæðinu, sé eitt af stórverkefnunum sem óumflýjanlegt er að ráðast í á næstu árum. Ég held að enginn sem kynnir sér samgöngumál, umferðarspár og aðstæður í þessum efnum geti neitað því að óumflýjanlegt sé að setja mikla fjármuni í uppbyggingu meginumferðaræðanna til og frá höfuðborgarsvæðinu á næstu árum þó mörg og brýn verkefni bíði víða annars staðar í landinu.
Alltaf má deila um forgangsröðun svo ekki sé nú talað um útfærslu og val á leiðum. Ég verð að segja að almennt tel ég að það sé heppilegasta fyrirkomulagið að stjórnmálamennirnir ákveði fjárveitingarnar, ákveði forgangsröðun verka og móti meginstefnuna en síðan sé það fagmanna að velja hinar tæknilegu lausnir. Það verður erfitt að ná þessum hlutum fram ef hér sitja 63 sérfræðingar í tæknilegum útfærslum í vegamálum á Alþingi og 15 sérfræðingar hinum megin við Vonarstrætið í borgarstjórn og þeir eiga að takast á um tæknilegar útfærslur og einstök framkvæmdaatriði í hverju einasta verki. Það er, held ég, ekki skipulag sem almennt er til farsældar fallið. Látum stjórnmálamennina um sitt og fagmennina um sitt í aðalatriðum.
Fyrir Sundabraut standa veigamikil rök og þar er verið að fjárfesta til langs tíma. Það hefur gildi í umferðarpólitísku samhengi hvað varðar umhverfisáhrif. Það hefur umferðaröryggislegt gildi og þar má auðvitað ekki tjalda til einnar nætur. Það eru rök sem mæla kannski með þeirri leið sem er dýrari og eðlilega hefur staðið í mönnum að stilla sér upp á bak við sem eru göngin á ytri leið.
Eins og verðið á eldsneyti er að þróast þessa dagana þá þyrfti ekki nema það til til þess að skoða mjög vandlega þá leið sem best fellur að framtíðarhagsmunum allrar umferðar sem er á leiðinni til og frá (Forseti hringir.) höfuðborginni norður og vestur um land.