tekjuskattur.
Herra forseti. Ég hef alltaf tekið undir það og sagt að að sjálfsögðu þarf skattalegt umhverfi fyrir atvinnurekstur hér á landi að vera samkeppnishæft við nágrannalöndin. Eins og heimurinn er í dag er það að sjálfsögðu nauðsynlegt. Ég hef hins vegar sagt um leið að við skulum hugsa okkar gang mjög vel áður en við förum að gera það eitthvað mjög mikið betur. En ég hef aldrei tekið undir hugmyndir sem iðulega hafa verið hér á kreiki í anda villtustu frjálshyggju um að hér eigi að fara að búa til einhverja algera skattaparadís, einhverja skattasmugu, og hugmyndir að laða hingað að einhvern atvinnurekstur utan úr heimi út á slíkt hafa aldrei fallið mér í geð. Ástæðan er m.a. sú að við erum í fyrsta lagi norrænt velferðarsamfélag og við þurfum tekjur til að standa undir því og gróðafyrirtæki, atvinnulífið á að leggja sitt af mörkum í þeim efnum og það hefur efni á því. Við skulum athuga það að við erum að tala hér um skattlagningu af hagnaði fyrirtækja. Við erum ekki að tala um brúttóskattlagningu á veltu eða tekjur eins og á við í tilviki launamanna. Það er rétt að muna alltaf eftir því. Við erum eingöngu að tala hér um spurninguna um það hve litla prósentu tökum við af hinum raunverulega hagnaði þegar allur kostnaður hefur verið dekkaður.
Hitt er svo það að margt fleira en skattprósentan ein markar starfsskilyrði fyrirtækja, þar erum við hv. þingmaður að minnsta kosti að hluta til sammála, og því fylgja miklir kostir fyrir fyrirtæki að búa í stöðugum og góðum velferðarsamfélögum eins og hinum norrænu. Það er margra prósentna virði og það er ástæðan fyrir því að atvinnurekstur helst á Norðurlöndunum þó að þar sé skattlagning talsvert hærri en hún er orðin hér á atvinnulífið. Af því að á móti koma kostir þess að búa í vel uppbyggðum samfélögum með góða og sterka innviði, menntakerfi og velferðarþjónustu þar sem starfsfólk unir ánægt við sinn hag o.s.frv. Við verðum alltaf að hafa heildarsamhengi þessara hluta í huga þegar við metum niðurstöðurnar.