störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég vil meina að hið háa orkuverð sé grafalvarlegt og komið til þess að vera. Það krefur ríkisstjórnina um verulega róttækar aðgerðir að ýmsu leyti. Í hátt í ár hefur verið starfandi nefnd í að skoða álögur á eldsneyti og hvernig megi auka hlut sjálfbærra orkugjafa í samgöngum, ekki hvað síst. Það verður að hraða þeirri vinnu. Sú nefnd átti að skila af sér í febrúar. Hvar eru niðurstöðurnar?
Hvenær ætlar ríkisstjórnin að segja okkur hvernig hún ætli að taka þátt í að gera okkur kleift að fara á milli staða með almenningssamgöngum, hvort heldur er í þéttbýlinu eða á milli þéttbýlisstaða úti á landi? Hvenær ætlar ríkisstjórnin að birta alvörustefnu um umhverfisvænar eða sjálfbærar samgöngur? Það skiptir verulegu máli við þessar aðstæður að við nýtum þau tækifæri sem eru til staðar til að breyta samgöngumunstri okkar.
Hvað gerðum við í síðustu orkukreppu, olíukreppu? Við hitaveituvæddum öll húsin. Hvað hefur það sparað okkur? Það skiptir verulegu máli að líta á þá möguleika sem við eigum til þess að hætta orkufylleríinu, horfast í augu við veruleikann og búa til nýja samgöngumáta. Ríkisstjórnin sem á að vera ábyrg fyrir því að slíkt sé gert og fjármunir veittir í það. Tækifærin til sjálfbærra samgangna blasa við og þessi ríkisstjórn er ekki að gera neitt sýnilegt í þeim efnum að innleiða sjálfbærar samgöngur.