Blönduvirkjun.
Herra forseti. Þeir þingmenn sem hér hafa hlustað nákvæmlega á tal okkar hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar munu auðvitað skilja að lokum að öll röksemdafærsla hv. þingmanns gengur út á að undirbyggja nauðsyn þess að virkja á Vestfjörðum þó að hér sé verið að spyrja um Blöndu. Það er nú mergurinn málsins.
Sá litli núningur sem er um tölur milli mín og hv. þingmanns er af sama uppruna, þ.e. upplýsingar koma allar úr iðnaðarráðuneytinu. Í raforkuskýrslunni var ég framsýnn og notaði nokkur ár fram í tímann en til þess að vera sem nákvæmastur í spá minni núna notaði ég meðaltal síðustu þriggja ára.
Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þegar menn flytja orku um langan veg þá tapast partur af henni, þ.e. orkutapið er fastur „konstant“, ef ég man eðlisfræðina rétt, þegar hún fer í gegnum spennivirki, jafnan út frá umfangi þeirra. En með lækkandi spennu eykst tapið og sömuleiðis vegalengdin. Þannig að vegalengdin skiptir verulega miklu máli í þessu.
Eins og hv. þingmaður segir er auðvitað æskilegast að hægt væri í bestu veröld allra veralda að skipuleggja framleiðslu orkunnar út frá atvinnulífinu. Því miður er lífið ekki svo einfalt. Að því er varðar hans hjartkæru Vestfirði sem vaka undir í þessari fyrirspurn hjá hv. þingmanni þá er staðan einfaldlega þannig að jafnvel þó að Vestfirðingar gætu komið sér upp góðum möguleika til orkufreks iðnaðar á einhverju svæði er að óbreyttu ekki heiglum hent að ná orku til þess.
Þannig er flutningskerfið einfaldlega í dag af því að skortur er á orkuframleiðslu fyrir vestan. Ef menn mundu nú detta í lukkupottinn og fyndu verkefni eins og t.d. gagnaver af þokkalegri stærð — það þyrfti ekki að vera eins stórt og það sem búið er að semja um á Suðurnesjum — þá er það mjög erfitt út af núverandi stöðu að koma því niður fyrir vestan.
En ég gleðst yfir áhuga þingmanna á þessu vegna þess að þegar ég talaði um jafnræði landsbyggðarinnar þá skipta (Forseti hringir.) orkumál ekki síst máli þar. Hv. þingmenn gleyma því þó stundum þegar verið er að tala um jafnræði.