135. löggjafarþing — 83. fundur,  2. apr. 2008.

umhverfisáhrif Nesjavallavirkjunar.

469. mál
[14:48]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Þingvallavatn er einhver dýrmætasta perla í lífríki náttúru Íslands. Það er þekkt að hiti getur haft mjög skaðleg áhrif á lífverur. Hæstv. ráðherra komst ekki til þess að segja frá því hér hvernig ástandsmælingum er háttað við Þingvallavatn en þeim sem þekkja þar til og hafa fylgst með því hvernig þróunin hefur verið á undanförnum árum er stórlega brugðið.

Ráðherrann lýsti því áðan þegar hann flaug yfir þarna fyrir skemmstu að það var alltaf vök við vatnið, væntanlega í Þorsteinsvík og þar um kring og þannig hefur ástandið verið mjög lengi.

Hver lífvera hefur í rauninni sitt kjörhitastig og það er staðreynd að tiltölulega fá dýr lifa af í vatni sem er yfir 30 gráðu heitt og alls engin ef það er orðið 42 gráðu heitt. Það er mjög mikilvægt að vanda mjög vel til vöktunar á þessu svæði og ég hvet hæstv. ráðherra til þess að snúa sér í því efni bæði til Líffræðistofnunar Háskóla Íslands og til Náttúrustofu Kópavogs sem eru sérfræðingar í vatnalíffræði á Íslandi.