ferjubryggjan í Flatey.
Hæstv. forseti. Sem svar við þeim spurningum hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur um ferjubryggjuna í Flatey vil ég taka þetta fram:
Ferjubryggjan í Flatey var upphaflega byggð um miðja síðustu öld og hefur verið haldið við síðan. Síðast var gert við bryggjuna um 2002 fyrir 3,1 millj. kr. og þar áður árið 1999–2000 fyrir rúmar 12 millj. kr. á verðlagi febrúar 2008. Bryggjan er farin að láta á sjá eins og hér hefur komið fram frá síðustu viðgerð og þarfnast lagfæringar. Nokkrir staurar eru ónýtir og nokkrar neðri tangir, þ.e. þverteymi milli staura til styrkingar og dekkið eða bryggjugólfið á enda bryggjunnar er brotið. Stendur til að gera við þetta í sumar.
Hversu langur skal viðlegukantur vera til að uppfylla öryggiskröfur sem gerðar eru til ferjuhafna fyrir skip sömu stærðar og Baldur og hversu langur er viðlegukanturinn í Flatey? spyr hv. þingmaður í annarri spurningu sinni.
Lengd bryggju fyrir ferju er ákveðin út frá stærð ferju, aðkomu og hvort skip liggur við bryggju í lengri eða skemmri tíma. Miðað við aðstæður í Flatey, viðlegutíma við bryggju og umferð að og frá borði er talið nægjanlegt að lengd bryggju sé um 30 metrar. Lengd bryggjunnar í Flatey er 18 metrar og er ætlunin að lengja hana í 40 metra.
Í þriðja lagi er spurt: Hvenær hefst viðgerð á bryggjunni og lengd viðlegukants þannig að ferjuhöfn uppfylli staðla og standist öryggiskröfur. Í þessum mánuði er ætlunin að bjóða út lengingu á bryggjunni í Flatey. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að vinna verkið síðasta haust en harðviðurinn í bryggjuna, sem átti að koma í september, er enn ókominn til landsins og hefur útboðið því frestast. Drátturinn á afhendingu harðviðar er vegna flóða í Kamerún, þaðan sem hann kemur, en samkvæmt upplýsingum efnissala er harðviðurinn væntanlegur í þessari viku.
Í fjórða lagi er spurt, virðulegi forseti: Stendur hugur ráðherra til þess að þessum verkum verði lokið fyrir sumarið? Stefnt er að því að ljúka lengingu bryggju eins fljótt og kostur er en óraunhæft er talið að það geti orðið áður en sumarumferð hefst. Talið er raunhæft að ljúka verkinu síðla sumars. Sé verktökum hins vegar settar of stífar tímaskorður verða tilboðin óhagstæðari og jafnvel líkur á að enginn fáist til að bjóða í verkið. Verkið gæti því orðið dýrara.
Virðulegi forseti. Eins og heyra má er jákvætt svar við öllum þessum spurningum og við skulum vona að framkvæmdum ljúki síðla sumars. Ekki veitir af vegna þess að í þessa fallegu eyju á traffíkin sennilega eftir að aukast enn meira eftir hina fallegu og stórgóðu mynd Brúðgumann sem sýnd hefur verið og var tekin upp á þessum fallega stað.