ráðstafanir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um ráðstafanir í efnahagsmálum. Þetta er 486. mál þessa þings á þingskjali 774. Flutningsmenn frumvarpsins eru ásamt mér aðrir hv. þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Markmið frumvarpsins og þeirra ráðstafana sem það kveður á um á sviði efnahagsmála er eins og segir í markmiðsgrein, 1. gr. frumvarpsins, að endurheimta efnahagslegan stöðugleika, ná verðbólgu á nýjan leik inn fyrir viðmiðunarmörk Seðlabankans, skapa forsendur til að vaxtalækkunarferli geti hafist, tryggja kaupmátt umsaminna launa og treysta undirstöður atvinnulífs og íslensks þjóðarbúskapar almennt.
Áður en ég mæli fyrir og fer yfir einstakar greinar frumvarpsins og þær ráðstafanir sem það felur í sér í einstökum liðum vil ég fara nokkrum orðum um bakgrunn og aðdraganda málsins og forsögu þess. Ég tek það fram að ég er þakklátur fyrir að hæstv. ráðherrar, starfandi hæstv. forsætisráðherra og hæstv. viðskiptaráðherra, eru hér viðstödd en við vitum af fjarveru ýmissa annarra ráðherra af ýmsum ástæðum, sökum ferðalaga erlendis eða veikinda og við því er ekki að gera. Engu að síður er jákvætt að mál þetta komist hér á dagskrá og til umræðu og áfram til nefndar og í raun og veru virðist ekki veita af að efnahagsmál séu hér höfð á dagskrá með einum eða öðrum hætti flesta daga á meðan óbreytt ástand varir.
Þannig er að þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur á mörgum undanförnum þingum flutt tillögur um aðgerðir til að reyna að ná tökum á og endurheimta þann efnahagslega stöðugleika sem tók að glatast á Íslandi á árunum 2004 og 2005. Við gerðum það fyrst með þingsályktunartillögu á útmánuðum vorið 2005 og var upphaf þess tillöguflutnings að sjálfsögðu það ójafnvægi sem þá hafði tekið að gera vart við sig í efnahagslífinu og gerði strax snemma á síðasta kjörtímabili. Þá voru uppi höfð mikil varnaðarorð frá ýmsum aðilum eins og Seðlabanka Íslands, greiningardeildum innlendra og erlendra banka og erlendra ráðgjafastofnana sem vöruðu við því hversu erfið hagstjórnin hlyti að verða við þær aðstæður sem þá var stofnað til.
Við talsmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs vöruðum frá upphafi við efnahagslegum ruðningsáhrifum stóriðjuframkvæmdanna ekkert síður en umhverfisskaðanum sem þeim fylgdu þegar fyrir lá að hinar gríðarmiklu samþjöppuðu framkvæmdir bæði á Austurlandi og suðvesturhorninu færu allar af stað og færu fram á örfáum missirum. Nú er þessi herkostnaður, þessi ruðningsáhrif stóriðju- og útrásarþenslutímabilsins, kominn fram og öllum ljós og hvílir á herðum almennings, heimila og fyrirtækja í formi verðbólgu, himinhárra vaxta og stóraukinna erlendra skulda þjóðarbúsins. Dýrmætur tími hefur farið til spillis, bæði á undanförnum missirum og nú á síðustu vikum, til þess að takast á við hlutina og bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn eru sekar um að hafa neitað að horfast í augu við vandann og hafa ekki brugðist við. Þegar svo er komið að aðgerðaleysi stjórnvalda vekur sérstaka athygli erlendis og er umfjöllunarefni þeirra sem ræða stöðu efnahagsmála á Íslandi ættu menn að fara að hugsa sinn gang.
Orsakir þessa eru vel þekktar. Það sem þegar olli áhyggjum á árunum 2004 og 2005 var ört vaxandi viðskiptahalli, sterkt gengi krónunnar sem veikti stöðu útflutningsgreina, vaxandi þensla í byggingariðnaði og hækkandi fasteignaverð, sprenging í bílainnflutningi og innflutningi á öðrum varningi og ekki síst og þessu tengt vaxandi undirliggjandi verðbólguþrýstingur. Þegar við bættust lágir vextir erlendis, t.d. á meginlandi Evrópu vegna hægagangs í hagkerfum þar, og mikið framboð á ódýru lánsfé sem dældist hér inn í hagkerfið, m.a. með hinni makalausu innkomu bankanna á fasteignalánamarkað, lagðist margt á eitt og hefðu þá allar viðvörunarbjöllur sem hringdu átt að nægja til að vekja stjórnvöld af dvalanum. Það gerðist ekki. Engar marktækar ráðstafanir voru af hálfu ríkisstjórnar gerðar til að kæla hagkerfið heldur var þvert á móti haldið fast við þensluhvetjandi aðgerðir sem varað var við og meira undirbúið af því sama.
Strax 2005 lögðum við til að farið yrði í umfangsmiklar aðgerðir: Að slá á frest eða hætta við allar hugmyndir um frekari þensluhvetjandi stóriðjuframkvæmdir a.m.k. til fimm ára. Að slá almennum skattalækkunum sem þá voru boðaðar og lögfestar á frest eða hætta við þær. Að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins að huga vandlega að áhættumati í bankakerfinu. Að beina þeim tilmælum til Seðlabanka Íslands að íhuga aukna bindiskyldu á nýjan leik og aðrar aðgerðir sem haldið gætu aftur af verðbólgu og þenslu. Og ekki síst að efna þá þegar til samstarfs aðila vinnumarkaðarins, samtaka bænda, samtaka öryrkja og aldraðra og fleiri slíkra aðila um aðgerðir til að endurheimta stöðugleika í anda þjóðarsáttarsamstarfs. Vegna þess að það blasti við strax á síðari hluta árs 2004 og þegar kom inn á árið 2005 að við Íslendingar vorum og erum því miður enn í mikilli hættu að missa endanlega fyrir borð þann stöðugleika sem tókst að tryggja í landinu með samstilltum aðgerðum ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins á árinu 1990 og gengur undir nafninu þjóðarsátt. Það er það sem er í húfi hér. Hinn gríðarlegi ávinningur sem varð af þeim aðgerðum og tryggði Íslendingum í fyrsta sinn um áratugi nokkuð heilbrigt og eðlilegt jafnvægisástand í efnahagsmálum er að glatast. Við erum að festast á nýjan leik í vítahring verðhækkana, gengissveiflna og óstöðugleika.
Því miður var ekki á þessar tillögur hlustað frekar en önnur varnaðarorð, á aðrar ábendingar sem komu frá fjölmörgum aðilum á þessum tíma. Að vísu verður að segjast að það var ótrúlega mikið þagnarsamsæri ríkjandi um að það væri allt í himnalagi og það þyrfti engar áhyggjur að hafa þó að allar vísbendingar væru um að við værum að sigla inn í stórhættulegt tímabil hvað þetta varðaði. Þótt ekkert annað hefði komið til en hinn gríðarlegi og vaxandi viðskiptahalli áranna 2004, 2005 og 2006 hefði það, eitt og sér, átt að nægja til þess að ábyrg stjórnvöld í hvaða landi sem er hefðu tekið hlutina alvarlega. Þegar svo var komið á árinu 2006 að viðskiptahallinn var orðinn 26% miðað við verga landsframleiðslu þá er slíkt auðvitað komið svoleiðis út úr öllu korti að þá skyldu enn vera fyrst og fremst umræður um það hversu gríðarlega mikið góðæri ríkti í landinu og hversu ástandið væri glæsilegt og árangurinn mikill. Það segir sína sögu. Og ætli það séu ekki einhverjir núna sem velta því fyrir sér að þeir hefðu kannski átt að hafa kjark og manndóm í sér til að taka undir með þeim sem á þeim tíma hvöttu til þess að tekist yrði á við ástandið? Því auðvitað verður það erfiðara og dýrara og hættulegra með hverju slíku ári sem líður með gríðarlegum viðskiptahalla, verðbólgu og skuldasöfnun.
Það voru vissulega uppi einstaka raddir hér jafnvel úr röðum stjórnarliða á þeim tíma sem lýstu áhyggjum og hvöttu til aðgerða. Það er hægt að nefna þann ágæta mann og félaga okkar fyrrum, Einar Odd Kristjánsson, í þeim efnum sem stóð oft í þessum ræðustóli og hvatti til þess að menn tækjust á við hlutina og þetta mundi fara illa ef menn flytu sofandi að feigðarósi eins og þarna gerðist. Því miður fór það svo og hafi menn bundið vonir við að betra tæki við vorið 2007 þegar ný ríkisstjórn settist að völdum þá kulnuðu þær vonir ótrúlega fljótt. Því ef eitthvað er var sú ríkisstjórn og hefur fram undir það síðasta verið enn þá meðvitundarlausari en sú fyrri hvað varðar þessa hluti og hafa þó óveðursskýin hrannast upp hvert á fætur öðru.
Ástandið nú má segja að einkennist af því að verðbólga er orðin meiri og fastari í sessi en nokkru sinni fyrr frá því í upphafi síðasta áratugs síðustu aldar. Verðbólgan er nú, mæld á ársgrundvelli miðað við síðasta mánuð, tæp 9% og það er veruleg hætta á því að við sjáum í fyrsta skipti í sögunni ganga í garð á nýjan leik tímabil tveggja stafa tölu í verðbólgu. Hvað er þá að gerast? Við erum komin aftur fyrir haustmánuði ársins 1990. Ég man það vel að því var fagnað hér á þessum vettvangi þá að við sáum í fyrsta skipti verðbólgutölu í eins stafs tölu haustið 1990. Það var gleðileg stund og henni var fagnað hér í sölum Alþingis. Að sama skapi er það alvarlegt ef við eigum eftir að sjá andstæðuna birtast okkur jafnvel í næstu verðbólgumælingu.
Staðan einkennist líka af því, sem er óhjákvæmileg afleiðing af viðskiptahallanum og eyðslu umfram efni á undanförnum missirum, að skuldaaukning helstu máttarstoða þjóðfélagsins er gríðarleg. Skuldir heimilanna eru meiri en nokkru sinni fyrr í sögu Íslands eða um eða yfir 240% af ráðstöfunartekjum. Þetta hlutfall var 80% árið 1990, 140% árið 1998, fyrir tíu árum, og fór yfir 200% árið 2005. Skuldaaukningin er einnig gríðarlega hröð og hefur verið mikil hjá atvinnulífinu og mörgum sveitarfélögum. Til samans er uppsöfnun skulda þjóðarbúsins í heild gríðarleg og vegur þó þar á móti að ríkissjóður hefur greitt niður skuldir sínar og stendur vel. Það er eina ljósið í myrkrinu. Því ber að sjálfsögðu að fagna og það skiptir miklu máli. En þeim mun alvarlegri er staða hinna aðilanna þegar það er haft í huga að þrátt fyrir góða stöðu ríkissjóðs eru heildarskuldir þjóðarbúsins út á við um 240–250% af vergri landsframleiðslu miðað við hreinar erlendar skuldir, þ.e. að slepptu áhættufjármagni.
Sveiflur á gengi krónunnar eru auðvitað þungbærar fyrir viðskiptalíf og heimilin í landinu en það er nauðsynlegt að undirstrika að þær sveiflur eru miklu fremur afleiðing hagstjórnarmistaka en að gjaldmiðillinn sé orsök eða vandamál í sjálfu sér. Krónan er ekki frumorsök erfiðleika hagkerfisins heldur tæki sem sveiflast vegna ójafnvægis innan þess. Og evran er ekki lausnarorð gagnvart þeim vanda sem við blasir eins og hv. þingmenn Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson bentu á réttilega í grein í Morgunblaðinu nýverið.
Þær ráðstafanir sem við leggjum til voru mótaðar fyrir um mánuði síðan og þá ráðfærðum við okkur við ýmsa sérfróða aðila um hvað væri vænlegt að gera og hvað mætti ætla að dygði til þess að ná tökum á ástandinu. Það ber að hafa í huga að við erum hér að tala um vinnu sem lagður var grunnur að og var lokið fyrir um mánuði síðan. Það er mjög nauðsynlegt að menn muni það þegar við veltum því fyrir okkur og reynum að svara spurningunni: Mundi það sem þá var talið fullnægjandi eða a.m.k. mjög myndug tilraun til að ná tökum á ástandinu duga í dag? Svarið er sennilega því miður nei, vegna þess að svo hratt hefur ástandið versnað. Við lögðum til og leggjum til í þessu frumvarpi að gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans verði styrktur verulega, því höfum við áður talað fyrir. Það má heita að eina vitlega ráðstöfun stjórnvalda á undanförnum missirum í efnahagsmálum hafi verið sú þegar tekið var lán upp á einn milljarð evra á árinu 2006 til að bæta við gjaldeyrisvaraforðann. Þá var nú ekki erfiðara að gera það en svo að ríkið græddi lengi og vel á þeirri lántöku, hafði tekjur af henni, og auðvitað er sorglegt að menn skyldu ekki nota aðstæðurnar þá og í framhaldinu til að stórauka gjaldeyrisvaraforðann eins og ég marglagði til og stakk upp á úr þessum ræðustóli.
Það var mat okkar á þessum tíma að 80 milljarða kr. aukning, miðað við gengið eins og það stóð fyrir mánuði síðan, í erlendri mynt hefði skipt verulegu máli og gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans þá farið upp á milli 250 og 300 milljarða, mældur í krónum. Og ef eigið fé Seðlabankans yrði styrkt til viðbótar um eins og 40 milljarða með innlendu skuldabréfaútboði, og vel að merkja þá erum við að tala um að öll gjaldeyrisaukningin verði lögð inn í Seðlabankann sem eigið fé, vegna þess að fram undir þetta hefur eigið fé Seðlabanka Íslands verið alveg hlægilega lítið. Það voru 50 milljarðar og tæplega það, sem er nú ekki há tala, í næstsíðustu ársreikningum Seðlabankans. Að Seðlabankinn skuli vera með minna eigið fé en tugir ef ekki hundruð fyrirtækja í landinu er mikið umhugsunarefni. Nú hefur að vísu verið notuð sú heimild sem var í fjárlögum ársins 2006 að breyta helmingi af evruláninu í eigið fé og það er vel, það þýðir að eigið fé Seðlabankans er nú að nálgast 100 milljarða en það er samt mjög lágt. Ég tel að mæla þurfi það í mörg hundruð milljörðum króna til að það nái einhverju máli og við eigum t.d. að taka okkur þar til fyrirmyndar norska seðlabankann og norsku ríkisstjórnina sem hefur fyrir löngu byggt upp firnasterkan seðlabanka og byggir stöðugleika í sínu hagkerfi m.a. á því.
Í öðru lagi höfum við lagt til að ríkisstjórnin leiti leiða til að efla sparnað, gera sparnað fýsilegan kost t.d. með útgáfu sparnaðarskuldabréfa hverra fjármagnstekjur verði undanþegnar skatti. Það er mjög mikilvægt að örva skuldabréfamarkaðinn á nýjan leik og skuldafjárútboð innan lands til að auka eigið fé Seðlabankans er af okkar hálfu hugsað sem liður í því. Nú má segja að menn hafi sýnt viðleitni í þessum efnum með útgáfu nýs flokks skuldabréfa sem kynntur var í tengslum við vaxtaákvörðun Seðlabankans á dögunum og það er vel en betur má ef duga skal.
Síðan lúta aðrar ráðstafanir í 4. og 5. gr. frumvarpsins fyrst og fremst að því, virðulegi forseti, að takast á við innra jafnvægisleysi í þjóðarbúskapnum. Það er nefnilega þannig að við Íslendingar glímum við tvenns konar ójafnvægi sem hvort tveggja er mjög alvarlegt og hvort tveggja hluti af vandanum. Það er jafnvægisleysi þjóðarbúsins í viðskiptum sínum út á við, viðskiptahallinn og tengd vandamál, og það er innra jafnvægisleysi sem birtist í því að á sama tíma og þensla og uppgangur liggur við að séu til vandræða á ákveðnum svæðum í landinu einkennir fólksfækkun og samdráttur og neikvæður hagvöxtur aðra landshluta. Þetta innra jafnvægisleysi er hluti af okkar vanda og á því þurfum við líka að taka. Það viljum við gera með því að styrkja sveitarfélögin sem hvort sem er þarf að gera vegna erfiðrar stöðu margra þeirra. Við leggjum til að 5 milljarðar kr. fari til þeirra ráðstafana á þessu ári og hinu næsta í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og við leggjum til aðra 5 milljarða kr. til að takast á við mismunandi framkvæmdastig og umsvif eftir landshlutum og til að jafna aðstöðu manna án tillits til búsetu og að þær ráðstafanir taki sérstaklega mið af því að skapa störf fyrir konur og vinna gegn kynbundnum launamun og kyngreindum búferlaflutningum í landinu sem verður að fara að horfast í augu við að er að verða stórt félagslegt vandamál hér á landi.
Hinar svokölluðu mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýndar og það ekki að ósekju. Þær hafa reynst bitlausar og þær hafa reynst mislukkaðar hvað það varðar að þær koma ekki að gagni þeim sem mesta þörf hafa fyrir þær vegna tekjufalls og erfiðleika sérstaklega í sjávarútvegi og nú hafa erfiðleikar í landbúnaði bæst þar við sem óumflýjanlegt er að horfa til og takast á við.
Við leggjum til að umtalsverðum fjármunum verði varið á næstu árum til að örva nýsköpun og fjölbreytni í atvinnumálum og að horft verði til þeirra hluta fremur en áframhalds á hinni blindu þensluhvetjandi stóriðjustefnu. Við leggjum til að Nýsköpunarsjóður fái einn milljarð, að Tækniþróunarsjóður fái annan milljarð og að 500 millj. kr. verði varið á þessu tímabili til atvinnuþróunarfélaga, allt að 250 millj. til aukins markaðsstarfs á sviði ferðamála og 250 millj. kr. til umhverfisaðgerða og uppbyggingu þjóðgarða.
Reyndar hefur hæstv. ríkisstjórn lofað ýmsu í þessum efnum sem hún hefur enn ekki staðið við. Samfylkingin fór til kosninga með gríðarlega hástemmd loforð um að margfalda fé t.d. til Tækniþróunarsjóðs. Hvar eru þeir fjármunir? Hvernig stendur á því að hann skuli vera jafnsveltur og raun ber vitni? Það er nú ekki mikið sem hann hefur fengið enn þá af kosningaloforðum Samfylkingarinnar á þessu sviði og væri þó ærin ástæða til, þ.e. ef menn vilja leggja grunn að einhverri annarri og framsæknari atvinnustefnu en gömlu nauðhyggjunni að ekkert geti bjargað okkur annað en fleiri álver. Hvar setur Samfylkingin mark sitt á stjórnarstefnuna að þessu leyti enn sem komið er? Ég spyr. Vonandi eigum við liðsmenn í henni þegar kemur að því að styðja það að þarna verði farið í áherslubreytingar og stórauknum fjármunum varið til nýsköpunar og uppbyggingar af því tagi.
Við leggjum til að Fjármálaeftirlitið verði eflt alveg sérstaklega hvað það varðar að það efli burði sína gagnvart áhættugreiningu og áhættuprófunum í fjármálakerfinu. Almennt má segja það sama um Fjármálaeftirlitið og fleiri stoðstofnanir atvinnulífsins í landinu að þær hafa ekki þróast í takt við aukin umsvif í hagkerfinu, aukin umsvif fjármálageirans og fleira í þeim dúr.
Í 8. gr. er aflað lagaheimilda eða lagðar til lagaheimildir til þess að stjórnvöld geti stýrt stórfjárfestingum inn í hagkerfið. Það er auðvitað galið ástand eins og menn hafa reynt að skýla sér á bak við hér undanfarna mánuði og missiri í umræðunni, fyrst Framsókn þegar hún fann upp afturvirku stefnubreytinguna að stóriðjumálin væru komin úr höndum stjórnvalda, og nú Samfylkingin sem skríður í gamla framsóknarskjólið, að stjórnvöld geti ekkert í þessu gert. Þá fá menn sér bara í hendur tæki sem þarf til að stýra þessum fjárfestingum svo að þær ryðjist ekki þannig samtímis inn í hagkerfið að þær kveiki í því. Það er galið ástand og við getum ekki búið við það. Gjörið þið svo vel, hér er komin tillaga að lagaákvæðum sem stjórnvöld geta þá haft í sínum höndum og auðvitað mun enginn mótmæla því að stjórnvöld og yfirvöld efnahagsmála í einu landi verða að hafa stjórntæki sem duga í höndum sínum til að hafa stjórn á ástandinu. Við teljum vel koma til greina að ganga til samningaviðræðna við fyrirtæki sem hafa haft slíkt í undirbúningi og mögulega kaupa af þeim rannsóknarniðurstöður eða greiða þeim einhvern áfallinn kostnað ef þeir svo kjósa frekar en að fallast á að bíða með sín áform a.m.k. þangað til að aðstæður hafa skapast í hagkerfinu til að hleypa þeim af stað.
Það er undarlegt að stjórnvöld hér á Íslandi með reynsluna fyrir framan nefið á sér af þeim herkostnaði sem hinar ofvöxnu stóriðjuframkvæmdir hafa leitt yfir hagkerfið skuli halda áfram á sömu braut og ekkert gera með varnaðarorð t.d. Efnahags- og framfarastofnunarinnar sem þrjú ár í röð í skýrslum sínum til Íslands hefur hvatt stjórnvöld til að taka á þessum þætti, að gera arðsemis- og hagkvæmnisúttekt á því hvort þessar stóriðjufjárfestingar yfir höfuð séu að skila þjóðarbúinu arði og að tímasetja þær þannig að eitthvert vit sé í því. Hvorugt hefur enn verið gert af hálfu hvorki núverandi né fyrrverandi ríkisstjórnar.
Að lokum leggjum við til í 9. gr. að komið verði á vettvangi samstarfs um efnahagsmál í anda þjóðarsáttar. Við köllum það þjóðhagsráð og því verði m.a. falið að fylgjast grannt með stöðunni og gefi stjórnvöldum mánaðarlega álit á framvindunni. Það skoði ýmsa kosti eins og þá hvernig afl lífeyrissjóðanna geti best nýst innan hagkerfisins sem liður í því að vinna okkur út úr vandanum þó að sjálfsögðu alltaf þannig að lífeyrissparnaður landsmanna sé eins tryggður og nokkur kostur er. En auðvitað erum við öll á sama báti einnig að þessu leyti. Lífeyrissjóðirnir og eigendur lífeyrissparnaðarins, almenningur í landinu, eiga mikið undir því að ástandið lagist því að annars verða ekki forsendur til að standa undir eins ríkulegum lífeyrisgreiðslum og við vonumst til að verði. Að settum slíkum lögum teldum við eðlilegast að í framhaldinu fengi fjármálaráðherra það hlutverk að leggja fyrir Alþingi frumvarp til fjáraukalaga nú á vordögum þar sem aflað væri með hefðbundnum hætti fjárheimilda til að standa straum af útgjöldum ríkissjóðs.
Tillögurnar eru þannig uppbyggðar og þannig hugsaðar að þær tækju úr umferð meira fé en þær setja í gang og miklu meira ef vel gengi í formi þess að afla fjár með skuldabréfaútgáfu innan lands og sparnaðaraðgerðum, þær mundu því hafa jákvæð áhrif í því skyni að slá á þenslu en ekki öfugt. Þau útgjöld sem ríkissjóður af þessum sökum tæki á sig upp á 15 milljarða kr. eða þar um bil á tveimur árum eru ekki stór borið saman við þá gríðarlegu hagsmuni sem ríkissjóður og almenningur í landinu á af því að við náum tökum á ástandinu, því að það er svo margfalt dýrara og hættulegra að gera ekki neitt. Það er það sem er virkilega dýrt. Hvað skyldi sofandaháttur ríkisstjórnarinnar þótt ekki væri nema bara frá og með næstsíðustu mánaðamótum vera búinn að kosta okkur ef við bara hugleiðum það? Ef ríkisstjórnin hefði í byrjun marsmánaðar gripið til myndugra ráðstafana í samstarfi við Seðlabankann og fjármálastofnanir og aðra aðila í þjóðfélaginu, það skyldi nú ekki vera að það væri búið að spara okkur ómældar fjárhæðir í dag? Og þegar ég segi okkur þá á ég auðvitað fyrst og fremst við þjóðina. Meginmarkmið tillagna okkar er að sjálfsögðu það að standa vörð um hagsmuni almennings og heimilanna í landinu og verja þau fyrir áföllum eins og nokkur kostur er. Það á að vera útgangspunktur allra okkar aðgerða, allra okkar ákvarðana. Við leggjum ekki til aðgerðir til að styrkja Seðlabankann eða rýmka stöðu fjármálastofnana, bankanna í útrásinni um þessar mundir, af samúð með þeim sérstaklega. Þeir eiga að líta í eigin barm og axla ábyrgð á þeim stóra þætti sem þeir eiga í ástandinu eins og það er orðið. En það eru auðvitað sameiginlegir hagsmunir okkar allra að verja þjóðarbúskapinn í heild sinni áföllum og í því eru hagsmunir heimilanna og almennings líka fólgnir, að kaupmáttur launa hrynji ekki í óðaverðbólgu, að skuldirnar skrúfist ekki upp úr öllu valdi. Ætli mönnum þyki nú ekki nóg um það sem þegar er komið?
Að sjálfsögðu getur verið nauðsynlegt og við erum með ýmsar tillögur og höfum verið með tillögur t.d. við síðustu fjárlagaafgreiðslu að grípa til ýmissa hliðarráðstafana sem lúta að afkomu og stöðu ýmissa hópa í samfélaginu beint eins og þeir hlutir hafa verið að þróast. Ég leyfi mér að nefna sérstaklega húsnæðisþáttinn og kostnaðinn þar. Ég held að það sé algjörlega óumflýjanlegt að stórhækka bæði vaxtabætur og húsaleigubætur við þessar aðstæður vegna þess að vaxtakostnaðurinn og fjármagnskostnaðurinn er svo íþyngjandi ekki síst hjá þessum hópi. Ég held að horfa eigi sérstaklega til stöðu t.d. námsmanna og þeirrar staðreyndar að þeir sem hafa framfærslu af námslánum lenda í miklum hremmingum um þessar mundir. Liður í slíku gæti verið að fella niður efniskostnað og skólagjöld í skólakerfinu, komugjöld í heilbrigðiskerfinu og annað í þeim dúr. Og ég nefni að sjálfsögðu stöðu aldraðra og öryrkja sem ekki hafa fengið, hvað sem hver segir, sambærilegar bætur og t.d. var ætlunin að lakast setti hluti launamanna fengi með nýgerðum kjarasamningum. Var ætlunin, segi ég, og minni þar á þá 18 þús. kr. hækkun sem þar var lögð til grundvallar lægstu töxtum. Kjarasamningarnir sjálfir eru í uppnámi. Það hafa aðstandendur þeirra, a.m.k. verkalýðshliðin, þegar sagt og óskað eftir fundum og samráði um hvað eigi að gera í þeim efnum. Það er algjörlega ljóst að kjarasamningarnir eru fyrir bí innan fárra vikna ef ekki tekst að ná tökum á og hemja verðbólguna og koma af stað ferli þar sem vextir geta tekið að lækka og verðbólga að fara niður.
Herra forseti. Það gætir undarlegra tilhneiginga til þess enn í umræðum um þessi mál að leita að sökudólgum. Mikið lifandis ósköp er ég orðinn leiður á því og hef mikla skömm á því þegar stjórnmálamenn eru ekki menn til að horfast í augu við afleiðingar eigin verka og viðurkenna ábyrgð sína. Nú eru það braskarar úti í heimi sem eru að gera á okkur áhlaup, vondu mennirnir sem þetta er allt að kenna. Það var þá hægt að finna eitthvað nýtt í framhaldi af Dönunum sem eru að fara með okkur til fjandans. Það eru spákaupmenn sem eru að gera ósvífna árás á okkur. Af hverju halda markaðshyggjumenn að spákaupmenn geri árás á hagkerfi? Af því að þeir vita um veikleika þess, hv. þm. Pétur Blöndal. Það kemur ekki úr lausu lofti. Þeir vita um erlendu skuldirnar, þeir vita um mistökin sem gerð hafa verið. Þeir vita hversu varnarlaust hagkerfið er og hversu auðvelt það gæti reynst að gera svona árás á það og þess vegna reyna þeir. Ég hef ekki samúð með þeim. Ég er ekki að mæla því bót að menn reyni að græða á erfiðleikum annarra, það er skammarlegt, en þannig er hinn kapítalíski heimur hv. þm. Péturs H. Blöndals að það er enginn annars bróðir í leik og menn svífast einskis þó að það varði heil samfélög eins og okkar.
Það er mikill misskilningur að ætla að kenna einhverju slíku um og þar sé frumorsaka vandans að leita. Vandinn er að uppistöðu til heimatilbúinn, hann er okkur sjálfum að kenna eða öllu heldur ykkur sem hafið ráðið fyrir okkar málum undanfarna mánuði, missiri og ár og verið þið menn til að horfast í augu við eigin ábyrgð. Sjálfstæðismenn ættu að gera upp tíma sinn í stjórnmálum landsins frá 1991 og spyrja sig t.d. að því hvernig í ósköpunum standi á því að þrátt fyrir snilldarráðsmennsku þeirra skuli erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa hrúgast þannig upp að við höfum slegið hvert heimsmetið á fætur öðru í þeim efnum. (Forseti hringir.) Er það eitthvað til að monta sig af, hv. þm. Illugi Gunnarsson?