135. löggjafarþing — 85. fundur,  7. apr. 2008.

umferðaröryggismál á Reykjanesbrautinni.

[15:32]
Hlusta

Steinunn Valdís Óskarsdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir skýr svör í þessum efnum. Ég vona svo sannarlega að það gangi eftir sem hann boðar hér að framkvæmdum verði lokið 15. október eins og að er stefnt þannig að við sjáum ekki fram á annað eins ófremdarástand næsta vetur og verið hefur í vetur. 23 umferðarslys á þeim spotta sem ég nefndi áðan eru allt of mörg umferðarslys og við viljum auðvitað ekki sjá annan eins vetur á næstunni.

Ég tel hins vegar, og er sammála hæstv. ráðherra um það, að við þurfum að leggja meiri áherslu á umferðaröryggismál almennt í vegakerfinu, ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu heldur líka úti á þjóðvegunum vegna þess að umferðarslysin kosta samfélag okkar mjög mikla fjármuni árlega. Því fagna ég yfirlýsingu ráðherrans um að hann vilji leggja meiri áherslu á umferðaröryggismál en gert hefur verið hingað til.