135. löggjafarþing — 85. fundur,  7. apr. 2008.

Gjábakkavegur.

[15:35]
Hlusta

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Aðeins hvað varðar þær spurningar sem hv. þm. Álfheiður Ingadóttir varpaði hér fram um Gjábakkaveg. Rétt er að taka skýrt fram að sú lega sem verið er að vinna með og Vegagerðin hefur lagt til er utan þjóðgarðsins, línan hefur verið færð út fyrir hann. Umhverfismat hefur verið framkvæmt og búið er að vinna alla þá vinnu en einhverjir aðilar, eins og vatnalíffræðingurinn sem hér var nefndur, Pétur M. Jónasson, hafa kært það. Sú kæra verður auðvitað að fara sína leið eins og nokkrir aðrir úrskurðir sem hafa verið felldir og fólk virðist ekki sætta sig við og fer þá með þá fyrir dómstóla og kærir.

Ef ég man rétt frá síðasta kjörtímabili fór hv. umhverfisnefnd talsvert mikið í gegnum þetta mál eða að það hafi farið í gegn í einhverri þingnefndinni og sú nefnd hafi komist að þeirri niðurstöðu að mengunin sem fjallað er um gagnvart vatninu væri ekki eins mikil og þarna er af látið. Nú kann ég ekki að segja nákvæmlega hvaða nefnd þetta var og af hvaða tilefni málið kom upp en ég man eftir þessari umræðu hérna.

Varðandi hitt sem hv. þingmaður spyr út í, hvort ég hyggist funda með þingmönnum kjördæmisins um þetta mál. Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það en eftir því sem mér skilst er það samdóma álit allra þingmanna kjördæmisins að þetta sé sú lega sem vinna eigi eftir. (GÁ: Okkur langar ekkert að hitta þig.) Heyri ég nú á formanni Framsóknarflokksins, sem er í þessu kjördæmi, að hann langar ekkert til að hitta mig út af þessu máli og hann hlýtur þá að tala fyrir hönd allra þingmanna kjördæmisins.