Gjábakkavegur.
Herra forseti. Það stendur eitthvað illa í bólið hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar á þessum sólbjarta degi hér sunnan heiða, skapvonskan er eitthvað að hrella þá. Ég verð að segja að þetta var afskaplega dapurlegur tónn í hæstv. samgönguráðherra, „einhverjir aðilar“ hafa gert athugasemdir. Jú, Pétur M. Jónasson, hann kunni það nafn, hæstv. ráðherra, og ef fólk vilji ekki sætta sig við eitthvað verði það bara að kæra og fara sína leið. Hæstv. samgönguráðherra virðist sem sagt alls ekki gera sér grein fyrir alvarleika málsins.
Ég vil upplýsa þingheim um það að munurinn á umferðartímanum, annars vegar á þeim tíma sem það tekur fólk að fara þá leið sem nú er verið að kæra og hins vegar um Kóngsveginn óbreyttan, eru tvær mínútur. Ég tel að það sé í rauninni ekki leyfilegt að fórna Þingvallavatni eða láta það ekki njóta vafans (Forseti hringir.) fyrir svo lítinn tímasparnað. Ég lýsi miklum vonbrigðum með þessi viðbrögð hæstv. samgönguráðherra.