135. löggjafarþing — 85. fundur,  7. apr. 2008.

ársreikningar.

527. mál
[17:30]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga, með síðari breytingum. Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til nýrra laga um endurskoðendur en það frumvarp miðar að því að innleiða hér á landi 8. félagatilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins 2006/43/EB frá 17. maí 2006 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikninga.

Þær breytingar sem hér eru lagðar til eru nauðsynlegar til að tryggja lögleiðingu á framangreindri tilskipun og því þykir rétt að leggja fram frumvarpið nú, samhliða frumvarpi til laga um endurskoðendur. Fyrir liggur að gera þarf frekari breytingar á núgildandi lögum nr. 3/2006, um ársreikninga, og hefur ráðuneytið unnið að endurskoðun laganna um nokkurt skeið en þeirri vinnu er ekki lokið. Gert er ráð fyrir að á næstkomandi haustþingi verði lagt fram frumvarp til frekari breytinga á lögum um ársreikninga.

Með frumvarpinu er lagt til að tilteknir lögaðilar, sem taldir eru mikilvægir frá sjónarhóli almannahagsmuna, svokallaðar einingar tengdar almannahagsmunum, skuli hafa starfandi endurskoðunarnefnd. Þar má m.a. nefna félög sem eru með skráð verðbréf á skipulögðum verðbréfamarkaði, vátryggingafélög og lífeyrissjóði. Með því að kveða á um skipun slíkrar nefndar er leitast við að tryggja gæði ársreikninga og annarra fjármálaupplýsinga viðkomandi lögaðila og óhæði endurskoðenda þeirra. Frumvarpið miðar að því að lögin öðlist gildi 1. janúar 2009 til samræmis við frumvarp til nýrra laga um endurskoðendur. Verði frumvarpið að lögum er áætlað að það muni ekki leiða af sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Frú forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.