135. löggjafarþing — 86. fundur,  8. apr. 2008.

störf þingsins.

[13:50]
Hlusta

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég tel að borið sé í bakkafullan lækinn af hálfu Samfylkingarinnar að saka Vinstri græna um tvískinnung í umhverfismálum. Stefna Framsóknarflokksins í umhverfismálum er skýr. Við leggjum á það áherslu að þar sem við búum yfir hreinum orkugjöfum eigum við að vera í fararbroddi í heiminum þegar kemur að orkuvinnslu og endurnýjanlegum orkugjöfum. Fyrrverandi umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins lögðu fram síðasta vor framtíðarstefnu um verndun og nýtingu auðlinda á Íslandi. Ég tel að það sé mjög skynsamlegt af hálfu Samfylkingarinnar að hafa tekið upp þá áætlun og kasta þar með áróðursplaggi sínu um Fagra Ísland í glatkistuna.

Hæstv. umhverfisráðherra tilkynnti í blaðaviðtali í lok síðustu viku að hún ætlaði að beita sér fyrir stjórnarskrárbreytingum og koma inn umhverfiskafla, sem ég skil á þann veg að eigi að vera í þá veru að stjórnvöld geti tekið ákvarðanir um það hvaða atvinnugreinar eigi að þrífast hér á landi og hverjar ekki.

Ég spyr því hv. formann þingflokks sjálfstæðismanna, Arnbjörgu Sveinsdóttur: Mun Sjálfstæðisflokkurinn beita sér fyrir áðurnefndum stjórnarskrárbreytingum og munum við eiga von á því að þing verði rofið og boðað til kosninga?

Ég spyr einnig: Stendur til að kalla saman stjórnarskrárnefnd til þess að vinna að breytingunum? Ef svo er krefjumst við framsóknarmenn þess að frumvarp okkar, um að náttúruauðlindir landsins sem ekki eru í einkaeigu teljist þjóðareign, verði tekið á dagskrá.

Í mínum huga hefur það komið betur og betur í ljós að undanförnu að stefna Samfylkingarinnar í þessu máli sem mörgum öðrum blaktir eins og lauf í vindinum. Þar liggur líka grundvallarmunurinn á stefnu framsóknarmanna og Samfylkingarinnar, Framsóknarflokkurinn á sér sögu og hefð og rætur sem hann er trúr.