utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka fyrir þá ágætu skýrslu sem hér liggur til umfjöllunar. Hún er efnismikil og mér finnst að mörgu leyti og flestu leyti kveða þar við nokkuð nýjan og jákvæðan tón í umfjöllun um utanríkismál. Mér finnst mjög mikilvægt að sjá þann skilning sem fram kemur í skýrslunni á mikilvægi þess að líta svo á að utanríkismál séu hluti af brýnum viðfangsefnum okkar innan lands og að samþætta beri sjónarmið kvenfrelsis, mannréttinda og sjálfbærrar þróunar í öll þau verkefni sem unnin eru á vettvangi utanríkisþjónustunnar. Ég held þess vegna að það sé mjög jákvætt að sjá hvernig að því hefur verið unnið á síðastliðnum mánuðum að byggja á þessum atriðum og þróa framgöngu okkar á alþjóðavettvangi í samræmi við þessi leiðarljós. Þessi leiðarljós birtast í ýmsum verkefnum og má þar nefna framboð okkar til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Eyjaverkefnið svokallaða, sem getið er um í skýrslunni og lýtur að samstarfi með eyþjóðum í Karíbahafi, er einnig sérstaklega áhugavert þar sem við reynum að byggja á þekkingu okkar á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, jafnt fiskveiðiauðlinda sem orkuauðlinda, til þess að aðstoða ríki sem þurfa þekkingar við á því sviði. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon kallaði eftir því áðan að við létum til okkar taka á Haítí og það má því segja að með eyjaverkefninu séum við komin í Karíbahafið og jákvætt að Íslendingar láti til sín taka þar á vettvangi eyþjóða, smáríkja sem eiga margt skylt með Íslendingum sögulega séð.
Virðulegi forseti. Aðeins fyrst um Atlantshafsbandalagið og öryggis- og varnarmál á þessum tímum. Ég tek undir með hæstv. utanríkisráðherra að það er mjög mikilvægt að við nýtum það tækifæri sem nú er komið til þess að losa umræðu um öryggis- og varnarmál úr því fari togstreitu og átaka sem einkennt hefur hana um áratugaskeið. Það er þess vegna mjög mikilvægt að við leitum tækifæra til að skilgreina þær hættur sem steðja að íslensku samfélagi saman og að við reynum að finna okkur viðbúnað sem hentar til að bregðast við þeim hættum.
Mér þótti gæta heldur neikvæðs tóns í ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar um þetta áðan þar sem hann talaði um NATO-væðingu sem einhvers konar leiðarljós í stefnu Íslendinga í öryggis- og varnarmálum nú og gerði því nokkuð skóna að því fælist einhvers konar árásarstefna eða aðild að bandalagi sem hefði árásarmarkmið.
Það er rétt að halda því til haga að Atlantshafsbandalagið er varnarbandalag og þau verkefni sem það hefur tekið að sér utan síns svæðis eru samkvæmt umboði Sameinuðu þjóðanna þar sem Atlantshafsbandalagið sinnir verkum sem það er kallað til af hálfu Sameinuðu þjóðanna svo sem í Afganistan.
Það sem í reynd má segja að hafi gerst á undanförnum rúmum tveimur árum frá því tilkynnt var um brottför varnarliðsins er að við höfum leitað meira til Evrópu með varnir okkar. Við höfum leitað leiða til þess að fella varnarviðbúnað okkar og starf okkar að öryggis- og varnarmálum í samstarf með bandalagsríkjum okkar í Evrópu og grönnum okkar á Norðurlöndunum. Það tel ég mjög jákvæða og eðlilega þróun og ég tel enga ástæðu til þess að ala á tortryggni í garð Atlantshafsbandalagsins sem sannanlega er, sama hvaða skoðanir menn kunna að hafa á einstökum atriðum í öryggis- og varnarmálum, bandalag þjóða sem eiga það sameiginlegt að búa við lýðræðislega stjórnarhætti og það eru okkar nánustu grannar og frændur í austri og vestri sem mynda þetta bandalag.
Í ræðu sinni fjallaði hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon líka um nýafstaðinn leiðtogafund í Búkarest. Ég deili ekki þeirri skoðun með hv. þingmanni að í því felist ögrun af hálfu Atlantshafsbandalagsins að ljá máls á því að ríki sem áður hafa verið á áhrifasvæði Rússa eigi val um það hvernig þau haga öryggismálum sínum. Ég fellst ekki á það að eitthvert ríki sem kýs að hafa í frammi ögrandi tilburði, eins og Rússar gera á stundum, eigi að geta haft sjálfdæmi um það að ákveða hvernig ríki sem það kýs að túlka sem ríki á sínu áhrifasvæði megi haga öryggismálum sínum. Slík afstaða er til þess fallin að draga mjög úr öryggi á heimsvísu og stuðla að átökum og tortryggni. Þvert á móti verðum við alltaf að láta ríkjum eftir sjálfdæmi í þessu efni. Svo er það önnur ákvörðun hvernig menn vilja nákvæmlega haga stækkunarferlinu. En það er mjög mikilvægt að við föllum ekki í þá gryfju að verja stórveldishagsmuni Rússa. Ekki frekar en við hefðum viljað að aðrar þjóðir litu svo á um áratugi að Ísland væri á áhrifasvæði Bandaríkjanna og þess vegna mættu Íslendingar ekkert hafa um sín eigin öryggismál að segja. Það hefðum við ekki viljað.
Virðulegi forseti. Í skýrslunni kemur fram sú aukna áhersla sem við þurfum nú að leggja á kynningu okkar og ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Breyttar aðstæður í alþjóðaviðskiptum og aukin þátttaka okkar í þeim viðskiptum valda því að við eigum meira undir ímynd landsins en nokkru sinni fyrr. Sumir hafa gantast með þetta upp á síðkastið og talað um að menn haldi að einhvers konar ímyndarhernaður geti leyst vandamál íslensks viðskiptalífs í bráð og lengd. Það er alrangt. Hins vegar verður tiltrú í garð viðskiptalífs að byggjast á upplýsingum, raunsönnum upplýsingum. Það skiptir mjög miklu máli hvernig stjórnvöld koma þar að og hvernig utanríkisþjónustan kemur þar að. Með öðrum orðum, það skiptir miklu máli að allir búi yfir dagréttum upplýsingum og að allir svari álitamálum með áþekkum hætti og á líka lund, því að annars er alið á ótrúverðugleika.
Það er ekki heldur til þess fallið að skapa tiltrú í öðrum ríkjum að sópa undir teppið umræðum um óþægileg mál hér innan lands. Við verðum að átta okkur á því að umræða innan lands á greiða leið í erlenda fjölmiðla. Svarið við því er ekki að veigra okkur við umræðum um erfiða hluti heldur þvert á móti að tala opinskátt um þá og sýna þar með fram á að við hræðumst ekki sannleikann. Greiningaraðilar, markaðsaðilar, munu alltaf getað borað sig á fast. Ef þeir sjá ótrúverðugleika í íslenskri stjórnarstefnu, í efnahagsstefnunni og í því hvernig eftirlitsstofnanir sinna verkefnum sínum munu þeir finna út úr því. Það sem við verðum að átta okkur á er að við búum í glerhúsi en sú staðreynd á ekki að valda því að við forðumst umræður um sannleikann heldur þvert á móti að vera okkur hvatning til að efna til víðtækrar opinnar umræðu um íslenskt efnahagslíf, veikleika þess og styrkleika.
Virðulegi forseti. Alþjóðamál eru í dag í eðli sínu samræða, þau er samræða okkar við umheiminn. Mér fannst ekkert sýna það betur en fundur Al Gores í Háskólabíói í morgun þar sem hann efndi til samræðu um eitthvert mikilvægasta mál jafnt innanlandsstjórnmála sem alþjóðamála. Hann rakti auðvitað hvar Íslendingar standa sterkt að vígi, hann rakti styrkleika okkar í sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda og hvað við gætum mögulega miðlað að því leyti. Hann fjallaði hins vegar ekkert um veikleika okkar. Það hefði nú satt að segja verið gaman að hafa myndavél fyrir utan sem hefði getað sýnt Al Gore inn á fundinn allar þær raðir af jeppum sem fyrir utan Háskólabíó voru. Hann hefði þá kannski getað velt upp hugmyndum og spurningum um skattlagningarstefnu íslenskra stjórnvalda á eldsneyti, bíla og annað slíkt.
Það er nákvæmlega þetta í hnotskurn sem sýnir mikilvægi alþjóðamálanna fyrir okkur. Við getum rætt hvar við höfum styrkleika og við verðum líka að geta lært hvar við búum við veikleika, hvar við getum bætt okkur og hvar við getum gert betur. Með nákvæmlega sama hætti á samvinna okkar á öðrum sviðum að verða og sérstaklega í þróunarsamvinnu þar sem við komum fram annars vegar með okkar styrkleika og hins vegar lærum að takast á við okkar eigin veikleika.
Að síðustu, virðulegi forseti, vil ég taka undir með hæstv. utanríkisráðherra þar sem hún í ræðu sinni lauk lofsorði á forseta Íslands og framgöngu hans á sviði utanríkismála. Ég held að það sé sérstök ástæða til þess nú, þegar við þökkum fyrir okkur eftir þessa ágætu heimsókn Al Gores í morgun, að við metum þá framgöngu að verðleikum og ég bind fyrir mitt leyti vonir við að sjá áfram mikið til forseta Íslands á alþjóðavettvangi á næstu árum.