135. löggjafarþing — 86. fundur,  8. apr. 2008.

utanríkis- og alþjóðamál.

556. mál
[18:44]
Hlusta

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vildi nota seinni ræðu mína til að fara yfir nokkur atriði sem komið hafa fram í þessari umræðu.

Í framhaldi af því sem hér hefur verið rætt um fyrirkomulag á samræðum milli stjórnmálaflokkanna um öryggismál og hættumat, finnst mér það umhugsunarefni að í þingsköpum skuli ekki vera gert ráð fyrir að skýrslur, hvort sem er um utanríkismál eða önnur mál, sé hægt að leggja til meðferðar á Alþingi og að þær fái þá þinglega meðferð í nefnd og eftir atvikum jafnvel á opnum nefndarfundum þar sem almenningi gæfist kostur á að fylgjast með. Ég held að slík aðferðafræði ætti einkar vel við í umræðum um öryggis- og varnarmál. Hér í þingsal væri hægt að fjalla um áætlanir, um stefnumörkun og síðan færi sú stefnumörkun til þinglegrar meðferðar án þess að um lagafrumvarp væri að ræða eða neitt slíkt. Síðan bærist eftir atvikum álit frá nefnd og umræða færi aftur fram í þessum sal.

Mér er nokkur spurn í huga eftir þessa umræðu um hugtakið hernaðarhyggju sem hv. þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa fjallað mjög um í dag. Ég átta mig ekki á fyrir hvað það stendur. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon grautaði öllu saman í eina skál, hvort sem var verkefnum sem Atlantshafsbandalagið hefur sinnt í umboði Sameinuðu þjóðanna — til að tryggja frið á átakasvæðum, koma í veg fyrir þjóðarmorð og stuðla að uppbyggingu eins og á Balkanskaga — eða vopnuðum átökum í Palestínu. Hann líkti þessu saman og talaði um að erfiðleikar á báðum sviðum sýndu gjaldþrot einhvers sem héti hernaðarhyggja. Ég átta mig ekki á hver þessi hernaðarhyggja er og ég held að það sé mjög mikilvægt að við forðumst að gengisfella hugtök með þessum hætti.

Ég deili þeirri skoðun með hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, og öðrum þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að við eigum að standa í ístaðinu gegn árásarstríðum, slík fyrirbæri hugnast mér ekki. Ég get hins vegar ekki sætt mig við þá heimssýn að lýðræðisríki eigi að afsala sér valdi til að hafa vopnaviðbúnað til sjálfsvarnar eða að lýðræðisríki og bandalag þeirra eigi ekki að sinna ákalli Sameinuðu þjóðanna um að halda uppi öryggi og tryggja frið á átakasvæðum.

Staðreynd málsins er sú, þó að þingmenn Vinstri grænna hafi í dag kallað eftir því að Atlantshafsbandalagið verði lagt niður, af því að nóg væri af öðrum alþjóðasamtökum, að engin önnur alþjóðasamtök búa yfir hliðstæðri getu til að sinna gæslu friðar eins og Atlantshafsbandalagið getur í krafti þess herafla sem það hefur yfirráð yfir vegna varnarviðbúnaðar þess. Mér finnst það mikill ábyrgðarhluti fyrir lýðræðisríki að neita meðbræðrum í næstu ríkjum, eins og á Balkanskaga, eins og í Afganistan, um að fá að njóta þess að það friðargæslulið komi og haldi uppi friði. Sá friður, vel að merkja, er nauðsynleg forsenda þess að alþjóðlegar mannúðarstofnanir hafi eitthvað að segja og uppbyggingarstarf og þróunarhjálp geti farið fram. Það er mjög mikilvægt að greina þarna á milli.

Mér finnst, eins og ég hef áður sagt, ekki hjálplegt hvernig þingmenn Vinstri grænna reyna að grauta öllu í eina skál og rugla saman fyrirbærum eins og stríði Bandaríkjamanna í Írak og verkefnum sem Atlantshafsbandalagið tekur að sér á grundvelli umboðs frá Sameinuðu þjóðunum. Þar er ólíku saman að jafna. Það er mun vænlegra til árangurs að við fjöllum um verkefni Atlantshafsbandalagsins eins og þau eru og ákveðum hverjum þeirra við teljum okkur fært að taka þátt í. Þá skiptir mestu máli að Atlantshafsbandalagið býr yfir getu til að halda uppi friði á svæðum sem aðrir hafa ekki treyst sér til að halda uppi friði á.