135. löggjafarþing — 86. fundur,  8. apr. 2008.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2007, um breytingu á IX. og XXII. viðauka við EES-samninginn.

557. mál
[20:47]
Hlusta

utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2007, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2006/46/EB frá 14. júní 2006 um breytingu á tilskipunum ráðsins 78/660/EBE um ársreikninga félaga af tiltekinni gerð, 83/349/EBE um samstæðureikninga, 86/635/EBE um ársreikninga og samstæðureikninga banka og annarra fjármálastofnana og 91/674/EBE um ársreikninga og samstæðureikninga vátryggingafélaga.

Gerð er grein fyrir efni ákvörðunarinnar í tillögunni og er ákvörðunin prentuð sem fylgiskjal við tillöguna ásamt þeirri tilskipun sem hér um ræðir.

Í tilskipuninni eru gerðar breytingar á fjórðu og sjöundu félagatilskipun sem þegar hafa verið teknar upp í EES-samninginn. Tilskipunin miðar að því að auka trúverðugleika á fjárhagsupplýsingum fyrirtækja. Meðal helstu breytinga sem felast í tilskipuninni er að lagðar eru auknar skyldur og aukin ábyrgð á stjórnarmenn félaga vegna reikningsskila og upplýsinga í ársreikningum. Á það jafnt við um fjárhagslegar og ófjárhagslegar lykilupplýsingar sem varða viðkomandi félag.

Helstu breytingar sem tilskipunin leggur til eru:

að aðildarríki geti hækkað viðmiðunarmörk lítilla og meðalstórra fyrirtækja um 20% frá þeim mörkum sem um getur í fjórðu og sjöundu félagatilskipun,

að aðildarríkin geti krafist eða heimilað notkun á gangvirði í reikningsskilum fyrirtækja í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).

Einnig eru gerðar kröfur um:

viðbótarskýringar með ársreikningi varðandi upplýsingar sem ekki koma fram í efnahagsreikningi og færslur til tengdra aðila,

að ársreikningur fyrirtækis sem skráð er á opinberum markaði innihaldi yfirlýsingu um góða stjórnunarhætti,

að tryggð sé samábyrgð stjórnarmanna á ársreikningi og skýrslum fyrirtækisins.

Samkvæmt tilskipuninni skal hún innleidd í regluverk aðildarríkjanna fyrir 5. september 2008. Stefnt er að því að innleiða tilskipunina hér á landi á haustþingi 2008 með breytingum á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006.

Unnið er að innleiðingu tilskipunarinnar í fjármálaráðuneytinu.

Ég legg til, frú forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umræðu og hv. utanríkismálanefndar.