135. löggjafarþing — 87. fundur,  9. apr. 2008.

staða samninga um svæði við Svalbarða og Hatton-Rockall.

335. mál
[12:09]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl):

Virðulegi forseti. Í þessari fyrirspurn er hreyft ákaflega mikilvægu máli sem varðar hagsmuni Íslendinga mjög mikið. Full ástæða er til að spyrja eftir og fá skýringar og greinargerð um framvindu samningaviðræðna á báðum þeim stöðum sem um ræðir við aðrar þjóðir. Það er ljóst að íslensk stjórnvöld hafa verið vel vakandi í þessum efnum og haldið fram kröfum okkar og sjónarmiðum gagnvart öðrum þjóðum eins og Írum, Bretum og Dönum á Hatton-Rockall svæðinu. Eftir yfirferð um það mál í utanríkismálanefnd í morgun hygg ég að segja megi að íslensk stjórnvöld og utanríkisráðuneytið standi sig vel í þeim efnum. Ég hvet ráðherra til áframhaldandi verka á því sviði. Það er alveg ljóst að þegar niðurstaða næst í báðum þessum málum í viðræðum við aðrar þjóðir munu Íslendingar njóta þess í umtalsverðum mæli.