135. löggjafarþing — 87. fundur,  9. apr. 2008.

vistakstur.

480. mál
[14:56]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég held að það sé öllum ljóst að ein alvarlegustu áhrif og vandamálin í umferðinni eru umferðarslys og neikvæð umhverfisáhrif. Stærsti vandinn sem við eigum við að etja hér á landi í umhverfismálum er aukin losun koltvíoxíðs sem stuðlar að gróðurhúsaáhrifum.

Umferðin hér er auðvitað stórvaldur í þessu sambandi og það er mjög mikilvægt að mínu mati að það sé horft til þess hvernig við getum minnkað losun gróðurhúsalofttegunda af völdum samgangna.

Það var afskaplega fróðlegt að vera í Háskólabíói í gær og hlusta á í raun magnaðan fyrirlestur Al Gores, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og Nóbelsverðlaunahafa, þar sem hann fjallaði einmitt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingarnar og allt sem því fylgir. Ég held að við séum öll að verða miklu meðvitaðri um mikilvægi þessara áhrifa og mikilvægi þess að taka á þeim og að þetta sé ekki bara vandamál stóru þjóðanna úti í heimi heldur þurfi hver og einn að axla ábyrgð hjá sér og taka á vandanum hver fyrir sig jafnvel þótt smáir séu og fáir.

Þess vegna er það skoðun mín að við hér á landi þurfum að huga rækilega að þessum málum. Þegar við ræðum um umferðina þá held ég að í rauninni gæti sérhver ökumaður tileinkað sér umhverfisvænni akstur en hann gerir í dag, hagkvæmari akstur. Til viðbótar við hin umhverfislegu sjónarmið sem liggja að baki þeirri fyrirspurn sem hér liggur fyrir af minni hálfu þá má kannski bæta því við að á þessum síðustu tímum eru það heilmikil efnahagsleg, fjárhagsleg atriði eða fjárhagslegir hagsmunir sem skipta máli í þessu sambandi.

Geysilega hátt verð á jarðefnaeldsneyti um þessar mundir kallar á það að við hugum vel að þessum málum. Ég hef leyft mér að leggja fram svofellda fyrirspurn til hæstv. samgönguráðherra:

Hyggst ráðherra beita sér fyrir aukinni fræðslu um vistakstur og hvetja til hans, og ef svo er með hvaða hætti verður það þá gert?