135. löggjafarþing — 87. fundur,  9. apr. 2008.

vistakstur.

480. mál
[15:01]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir þau mjög svo greinargóðu svör við fyrirspurninni sem ég lagði hér fram. Það er bersýnilegt að í ráðuneyti samgöngumála eru menn afskaplega meðvitaðir um mikilvægi þess að efla vistakstur. Í honum felast margvísleg tækifæri m.a. til þess að leggja lóð á vogarskálarnar til að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur í loftslagsmálum. Það er fagnaðarefni og ég vil að það komi fram af minni hálfu.

Eitt af því sem er hvað mikilvægast í sambandi við það að efla og breiða út vistakstur er að hann komist með formlegum hætti inn í ökunám. Hæstv. ráðherra nefndi það hér sérstaklega sem lið í átakinu um útbreiðslu vistaksturs að beita sér fyrir breytingum á lögum og hugsanlega reglum þannig að vistakstur komist formlega inn í ökunám. Ég fagna því sérstaklega, ég veit að vísu ekki nákvæmlega með hvaða hætti það yrði gert, hvaða lög hér er um að ræða og hvernig þessu yrði náð en ég held að markviss kennsla í vistakstri og fræðsla í ökunáminu sjálfu sé í raun og veru lykillinn að því að við náum árangri til lengri tíma litið. Almenn fræðslunámskeið fyrir allan almenning eru að sjálfsögðu góð eins langt og þau ná en maður veit ekki nákvæmlega hvaða árangur það ber til lengri tíma litið. Námskeið fyrir atvinnubílstjóra eru að sjálfsögðu mikilvæg líka en það hlýtur að vera gengið út frá því, komist vistakstur á einhvern hátt formlega inn í ökunám, að hann verði líka hluti af ökunámi atvinnubílstjóra til framtíðar litið.

Ég þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir þessi svör og lýsi ánægju með þau.