135. löggjafarþing — 90. fundur,  15. apr. 2008.

aðgerðir í efnahagsmálum.

[13:39]
Hlusta

Valgerður Sverrisdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir þingheim og þjóðina að heyra, ef það er þannig sem hæstv. ráðherra segir, að ekki sé ágreiningur í þessu mikilvæga máli og að undirbúningur að því að styrkja gjaldeyrisvaraforðann sé hafinn. Ekki er hægt að neita því að skilaboðin sem hafa verið að berast frá sumum hæstv. ráðherrum og seðlabankastjóra eru á þann veg að það er mjög erfitt að átta sig á hver sannleikurinn er í málinu. Það gæti þá verið að þeir ættu ekki að vera að tjá sig svona mikið, hæstv. ráðherrar. Björgvin G. Sigurðsson tjáði sig fyrir nokkrum dögum eins og þetta væri bara að gerast alveg næstu daga.

Ég spyr þá hæstv. utanríkisráðherra til viðbótar hvað henni finnst um ummæli hæstv. viðskiptaráðherra sem höfð eru eftir honum. Hann telur að athuga þurfi hvort taka eigi upp faglega stjórn á Seðlabankanum. Hvað finnst hæstv. utanríkisráðherra um það? Ef hún er sammála honum er gott að vita það. Ef hún er það ekki þá spyr ég hvort hún sem formaður Samfylkingarinnar muni leiðrétta þetta.