rækjuveiðar.
Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að kvótinn sem hefur verið gefinn út í rækju er ekki takmarkandi þáttur þegar kemur að því að nýta þennan rækjukvóta. Undanfarin ár hafa rækjuheimildir verið ónotaðar en meginástæðan fyrir því er ósköp einfaldlega sú að óhagkvæmt hefur verið fyrir útgerðina að stunda rækjuveiði. Verð á rækju hefur verið tiltölulega lágt en kostnaður jafnframt verið mikill. Olíuverð hefur verið að hækka eins og allir þekkja og það hefur spilað mjög mikið inn í þetta.
Mér er ekki kunnugt um að út af fyrir sig hafi staðið á því að menn fengju þessar rækjuheimildir. Mér er þvert á móti kunnugt um að rækjuverksmiðjur og fyrirtæki sem eru handhafar þessa kvóta hafa verið að bjóða hann fram en ekki hefur verið til staðar sá áhugi sem maður hefði ella getað vænst hjá mönnum að nýta þetta og fyrir því hafa verið efnahagsleg rök. Ef einhver tregða er í því að menn geti fengið að nýta þennan kvóta þá eru ýmis ráð til að auðvelda það. En ég held að það sé ekki rétt hjá hv. þingmanni að það sé svo. Margar rækjuverksmiðjur þurfa á auknu hráefni að halda og þær eru í einhverjum tilvikum handhafar að veiðiheimildum og hafa verið að leita eftir því við útgerðir að þær nýti þessar aflaheimildir.
Vandinn er bara þessi, sem við þekkjum, að vegna erfiðleika í rækjunni, vegna sölu- og markaðserfiðleika, hefur verð á rækjunni upp úr sjó ekki hækkað eins og annað fiskverð í landinu. Sem betur fer eru, eins og hv. þingmaður segir, ýmis teikn á lofti sem gætu bent til þess að eitthvað fari að rætast úr og við vitum auðvitað að gengislækkun upp á síðkastið ætti að styrkja þennan grundvöll rækjuvinnslunnar. En stóra málið er það og vandamálið hefur verið það að hinar rekstrarlegu aðstæður rækjuverksmiðjanna og rækjuútgerðanna hafa verið á þann veg að því miður hefur ekki verið mikill áhugi á því að nýta þennan kvóta.