olíugjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Samúel Erni Erlingssyni fyrirspurnina. Í umhverfisráðuneyti er ekki sýslað með skatta og gjöld á bifreiðar en eins og hv. þingmaður veit væntanlega hefur verið í gangi heildarendurskoðun á skattlagningu og gjaldtöku af eldsneyti. Sú skýrsla hefur verið unnin í samstarfi margra ráðuneyta undir forustu hæstv. fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytis. Ég á von á að sú niðurstaða líti dagsins ljós innan einhverra vikna og þar mun væntanlega draga til tíðinda í þessum málum. Ég upplýsi ekki meira um það að svo stöddu. En á þessu ári mun einnig þurfa að ræða aðgerðaáætlun um samdrátt við losun gróðurhúsalofttegunda til langs tíma. Að sjálfsögðu er skattlagning, hvort sem við köllum það hagrænan hvata eða græna skatta, hluti af umræðunni um hvernig eigi að draga úr losun.
Ég get tekið undir með hv. þingmanni í því að þessi þróun hefur ekki orðið eins og menn vonuðust eftir og ráð var fyrir gert. Það þarf auðvitað að skoðast í því ljósi. Hins vegar, vegna losunarumræðunnar og mengunarumræðunnar, vitum við líka að annars konar mengun kemur frá dísilbílunum. Þeir valda mikilli svifryksmengun sem við megum ekki gera lítið úr en það þarf að taka það með í reikninginn þegar menn bera þetta saman.
Annað sem hv. þingmaður minntist á var skattlagning og endurgreiðsla vegna almenningssamgangna. Ég styð að almenningssamgöngur verði gerðar ódýrari í rekstri fyrir sveitarfélögin. Þannig verður auðveldara fyrir ríki og sveitarfélög að halda úti almenningssamgöngum í landinu.